Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hæstiréttur fellir tolla Trumps úr gildi

  • What: The US Supreme Court has ruled that former President Donald Trump did not have the authority to unilaterally impose tariffs on several trading partners.
  • Impact: The ruling is a setback for the Trump administration, and companies may seek refunds on tariffs already paid.
Read Full Article →

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra. Trump lagði tollana á með vísun í neyðarlög um efnahagsmál sem voru sett árið 1977 en eins og nafnið gefur til kynna átti aðeins að nota þau í neyðartilvikum. Tollarnir tóku gildi 2. apríl og Trump sagði þann dag vera dag frelsunar fyrir bandarískan vinnumarkað. Sex af níu dómurum Hæstaréttar segja þau lög ekki heimila forsetanum að setja tolla á önnur lönd. Til að leggja þá á þurfi hann meirihluta þingsins. Hlutabréfamarkaðir hafa tekið þessum tíðindum vel og helstu vísitölur hafa hækkað. Þetta er hins vegar líklega mesta áfall sem stjórn Trumps hefur orðið fyrir á valdatíð sinni. Þá hafa fjölmiðlar rætt um að fyrirtæki myndu sækjast eftir endurgreiðslu á þeim tollum sem þau hefðu þegar greitt, sem væru verulegar fjárhæðir.

Share this article