Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að hann myndi hækka verndartolla á allar innfluttar vörur til Bandaríkjanna úr 10%, eins og hann tilkynnti í gær, upp í 15%. Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi verndartolla, sem Trump lagði á hin ýmsu viðskiptaríki síðasta árið, ólögmæta í gær. Trump brást hart við úrskurðinum sem fól í sér að forsetanum væri ekki heimilt að leggja tolla á viðskiptaríki með vísun í ákvæði laga sem veita neyðarrétt til slíks. Hann undirritaði tilskipun um 10% toll á öll ríki heims í gærkvöld, sem byggir á grein í viðskiptalögum frá 1974 og enginn forseti hefur beitt áður. Ákvæðið heimilar forseta að setja allt að 15% toll á öll lönd til að taka á málum sem tengjast viðskiptahalla, sem megi þó aðeins gilda í 150 daga, nema þingið samþykki framlengingu. Tilskipunin gengur í gildi á þriðjudag og varir í 150 daga nema þingið samþykki framlengingu. Á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag sagðist Trump hafa ákveðið, eftir ítarlega yfirferð á dómi hæstaréttar, að hækka tollana tafarlaust upp í 15% á öll ríki heims. Hann væri auk þess að leita annarra lagalegra leiða til að hækka tolla á önnur ríki. Hann tók fram að úrskurður hæstaréttar hafi verið bæði fáránlegur og illa skrifaður auk þess sem hann væri einstaklega and-amersíkur.