Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki

  • What: Housing market challenges for low-income people
  • Impact: Social and economic concerns in Iceland
Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.4.2026 | 10:21 Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Ef horft er til framtíðar almenna íbúðakerfisins og laga um húsnæðismál ber sveitarstjórn ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Beint: Húsnæðisdagurinn 2026 Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna » Fleiri tengdar fréttir Einstaklingur með hámarkstekjur almenna íbúðakerfisins getur við núverandi vaxtastig að hámarki keypt íbúð fyrir 42,5 milljónir, að því gefnu að hann hafi eigið fé sem nemur 4,2 milljónum.​ Um 2,5% seldra eigna 2025-2026 samræmdust kaupgetu þessa einstaklings. Ljóst er að húsnæðismarkaðurinn nær ekki utan um lágtekjufólk á vinnumarkaði. Bjarg er stærsta félagið sem byggir innan almenna íbúðakerfisins en langir biðlistar eru eftir slíkum íbúðum. Það er á ábyrgð sveitarfélaganna að tryggja að byggt sé nægt íbúðarhúsnæði fyrir alla hópa samfélagsins en dæmi eru um að sveitarfélög hafi hafnað úthlutun lóða til framkvæmdaaðila sem ætla að byggja innan almenna kerfisins. Þetta kom fram á fundi ASÍ og BSRB í dag þar sem Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, og Jana Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, kynntu nýja greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið. 90% af eignum seldust á yfir 52,5 milljónir Ef litið er til tekju- og eignamarka almenna íbúðakerfisins​ eru hámarkstekjur sem einstaklingur má hafa 761.500 kr., sem eru 558.188 kr. eftir skatt, og hámarkseign eru 9.874.000 kr. Lánþegaskilyrði Seðlabankans​ kveða á um 80% hámarksveðsetningu, en 90% fyrir fyrstu kaupendur, og 35% hámarksgreiðslubyrði, en 40% fyrir fyrstu kaupendur. Einstaklingum með hámarkstekjur almenna íbúðakerfisins er óheimilt að taka lán með greiðslubyrði yfir 223 þúsund á mánuði vegna lánþegaskilyrða.​ Við núverandi vaxtastig getur sami aðili að hámarki keypt íbúð fyrir 42,5 milljónir að því gefnu að hann hafi eigið fé sem nemur 4,2 milljónum.​ Meðalverð á eignum í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu var ​76,5 milljónir á árunum ​2025-2026. 90% af öllum seldum eignum seldust á yfir 52,5 milljónir.​ Aðeins um 2,5% seldra eigna samræmdust kaupgetu einstaklings með hámarkstekjur almenna íbúðakerfisins og 10% eigið fé.​ Bjarg íbúðafélag hefur meðal annars byggt leiguíbúðir í Hraunbænum í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Stofnframlög tryggð fyrir 6.900 óhagnaðardrifnar íbúðir Verkalýðsfélögin hafa unnið að því að tryggja fjármögnun stofnframlaga í kringum kjarasamninga. Stjórnvöld hafa gefið út yfirlýsingar í kringum kjarasamninga með loforðum um stofnframlög. Á þann hátt hafa stofnframlög verið tryggð fyrir 6.900 óhagnaðardrifnar íbúðir á árunum 2015-2024. Þetta var gert með yfirlýsingum með kjarasamningum 2015, 2019, 2022 og 2024. Árið 2022 var gerður rammasamningur þar sem gert er ráð fyrir að ríkið geri samning við sveitarfélögin um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis næstu tíu ára. Þar er gert ráð fyrir að tæplega þriðjungur nýs húsnæðis sé hagkvæmt húsnæði í almenna kerfinu eða að möguleiki sé á hlutdeildarláni. Aðeins fjögur sveitarfélög hafa undirritað slíkan samning, þar á meðal Reykjavík. Sveitarfélögin eru 62 talsins. Árið 2024 kom út húsnæðisstefna sem var samþykkt á Alþingi og náði til ársins 2038 með aðgerðaáætlun. Þar er áhersla á almenna íbúðakerfið og þar á meðal gert ráð fyrir aukinni aðkomu sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa hafnað úthlutun lóða Stofnframlög hafa ekki verið nýtt að fullu vegna lóðaskorts. Raunar hafa sveitarfélög hafnað úthlutun lóða til framkvæmdaaðila sem ætla að byggja innan almenna kerfisins. Þannig er staðan eins og er um 2.700 íbúðum frá markmiðum. Af 15 stærstu sveitarfélögunum hefur Reykjavík tekið flestar íbúðir í notkun frá Bjargi, það er 661 íbúð. Þar á eftir er Hafnarfjörður sem tekið hefur í notkun 148 íbúðir. Þar á eftir fylgir Akranes með 57 íbúðir, Akureyri með 31, Árborg með 28, Garðabær með 22, Mosfellsbær með 12 og Suðurnesjabær með 11. Lítið hefur verið byggt fyrir tekjulágt fólk á vinnumarkaði. Um þúsund íbúðir hafa verið teknar í notkun hjá Bjargi en ef horft er til framtíðar almenna íbúðakerfisins og laga um húsnæðismál ber sveitarstjórn ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Sveitarfélög þurfa þannig að tryggja framboð á óhagnaðardrifnu húsnæði í samræmi við rammasamkomulag um húsnæðisuppbyggingu. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Beint: Húsnæðisdagurinn 2026 Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breyttar reglur á HM Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Enginn úr meirihlutanum mætti „Gefðu þig fram áður en málið verður verra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hrósað fyrir aðlögun að ESB Vindhviður yfir 30 metrar á sekúndu Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Nýjast á mbl.is » Breyttar reglur á HM Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Enginn úr meirihlutanum mætti „Gefðu þig fram áður en málið verður verra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Hvetur þingmenn til að koma sér saman um spurningu Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri

Share this article