Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stofna óhagnaðar­drifið húsnæðis­félag

Read Full Article →

Viska og Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) hafa gert samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. „Samkomulagið markar tímamót fyrir húsnæðisöryggi háskólamenntaðra á vinnumarkaði, en eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund háskólamenntaðir utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum,“ segir í tilkynningu á vef Visku. Við uppbyggingu félagsins munu Viska og FÍN horfa til til sambærilegra húsnæðisfélaga, m.a. Bjargs. „Með sambærilegri nálgun vilja Viska og FÍN byggja upp sjálfbært kerfi sem þjónar þörfum félagsfólks til lengri tíma. Leiguverð í slíkum íbúðum getur verið allt að þriðjungi lægra en á almennum markaði sem oft nemur rúmlega hundrað þúsund krónum á mánuði.“ „Með því að niðurgreiða húsnæðiskostnað félagsfólks með þessum hætti viljum við auka velferð þess og ýta undir sparnað, hvort sem fólk hefur í hyggju að kaupa síðar eða vera áfram á leigumarkaði,“ segir Þorkell Heiðarsson , formaður FÍN. Vísað er til nýlegrar könnunar Visku og FÍN sem benda til þess að 11% af rúmlega 8.000 félagsfólki félaganna tveggja falla undir núverandi viðmið um almennar íbúðir. „Fólkið sem helst þarf á aðstoð að halda eru einstæðir foreldrar eða ungt fólk sem vinnur fyrir lág laun. Mörg segjast vera föst á leigumarkaði og rúmlega 90% segjast þurfa fjárhagslega aðstoð frá aðstandendum til að kaupa sér íbúðarhúsnæði.“ „Við höfum verulegar áhyggjur af því að háskólamenntaðir sitji eftir þegar kemur að uppbyggingu hagkvæmra húsnæðisúrræða. Þessi hópur hefur hingað til að stórum hluta verið útilokaður frá almenna íbúðakerfinu,“ segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir , formaður Visku.

Share this article