Reir ehf., móðurfélag verktakafyrirtækisins Reir verks, undirbýr nú stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags undir merkjum Reir íbúðafélags. Umrætt félag verður svokölluð húsnæðissjálfseignarstofnun (hses.) en HMS og sveitarfélögum er heimilt að veita stofnframlög vegna byggingar eða kaupa á almennum íbúðum til slíkra félaga. Borgarráð samþykkti í síðustu viku tillögu matsnefndar Reykjavíkurborgar um að veita hinu óstofnaða félagi stofnframlag upp á 984 milljónir króna vegna byggingar 120 íbúða á Stórhöfða. Stofnframlag borgarinnar samsvarar 12% af stofnvirði verkefnisins sem er áætlað um 8,2 milljarðar króna. Forsenda fyrir veitingu stofnframlags Reykjavíkurborgar er að HMS veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag ríkisins innan þriggja mánaða frá samþykki borgarráðs á umsókn um stofnframlag. Heildarstofnframlag ríkis og sveitarfélags getur orðið allt að 30% eða hærra, að því er segir á heimasíðu HMS . Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst er þetta fyrsta húsnæðissjálfseignarstofnunin sem er á vegum byggingarfélags í eigu einkaaðila. Meðal félaga sem flokkuð eru sem hses. er Bjarg íbúðafélag sem var stofnað af ASÍ og BSRB. „Við erum að fara þessa leið vegna þess að við teljum mikilvægt að einkaaðilar taki virkan þátt í að byggja upp langtímalausnir á húsnæðismarkaði,“ segir Rannveig Eir Einarsdóttir , forstjóri og eigandi Reirs verks, í samtali við Viðskiptablaðið. Hún segir að félagið sé stöðugt að huga að langtímalausnum á húsnæðismarkaði, t.d. með stofnun húsnæðissjóðsins Reir20 síðasta haust. Stofnun Reir íbúðafélags falli vel að Reir en félagið hafi sinnt uppbyggingu sambærilegra verkefna fyrir hönd annarra óhagnaðardrifinna leigufélaga á borð við Bjarg og Brynju. „Ávinningur okkar felst kannski fyrst og fremst í því að nýta okkar þekkingu og reynslu í uppbyggingu slíkra verkefna,“ segir Rannveig og bendir á að félagið sé t.d. með iðnaðarmenn í vinnu til að þjónusta íbúðir leigufélaga. Á sama tíma geti Reir íbúðafélag sinnt mikilvægu hlutverki á íbúðamarkaði. Hún bendir á að rekstur leigufélagsins verði alveg aðskildur byggingarverkefninu sem er í höndum Reir verks. Að sama skapi sinni byggingafélagið uppbyggingunni á sömu markaðsforsendum og það hefur gert fyrir önnur óhagnaðardrifin leigufélög. „Öll verð hafa verið yfirfarin og samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem tryggir gagnsæi og að opinberir fjármunir séu nýttir á ábyrgan hátt þannig mun Reir verk byggja fyrir Reir íbúðafélag á nákvæmlega sömu verðum og forsendum.“ Reir sótti um stofnframlag frá Reykjavíkurborg fyrir uppbyggingu 184 íbúða byggð í 7-10 stakstæðum húsum á Ártúnshöfða. Umrædd hús eru á lóðum M og N á Stórhöfða. Matsnefnd Reykjavíkurborgar lagði til að samþykkt yrði stofnframlag vegna 120 af þessum 184 íbúðum. Aðspurð segir Rannveig að þær íbúðir sem féllu ekki undir stofnframlagið fari líklega á almenna markaðinn. Mögulega verði þær íbúðir skipulagðar svo þær uppfylli skilyrði hlutdeildarlána. Hún segir Reir hafa átt í góðu samtali við Reykjavíkurborg og HMS vegna verkefnisins á Stórhöfða og fyrirhugaða stofnun Reir íbúðafélags.