Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Játaði að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleikum Taylor Swift

A 21-year-old man has confessed to planning a terrorist attack targeting a Taylor Swift concert in Vienna, Austria, which was disrupted by a CIA tip-off leading to his arrest. Authorities found a nearly completed explosive device during a search of his home, and the individual is also accused of being part of a terrorist organization linked to the Islamic State, with plans for further attacks in other cities. The plot resulted in the cancellation of all three concerts, highlighting the persistent threat of coordinated physical attacks against large public gatherings.
Read Full Article →

21 árs gamall maður hefur játað að hafa skipulagt hryðjuverkaárás á tónleika bandarísku söngkonunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki fyrir tveimur árum. Réttarhöld yfir honum og öðrum manni hófust í dag. Maðurinn, sem gengur aðeins undir nafninu Beran A, var ákærður fyrir hryðjuverk og önnur brot. Hann kom fyrir dóm í morgun og játaði einnig að hafa verið hluti af hryðjuverkasamtökum. Saksóknarar sögðu lögreglu hafa fundið nánast tilbúna sprengju við húsleit heima hjá manninum. Hann var handtekinn eftir ábendingu frá leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, skömmu áður en tónleikar Swift áttu að hefjast. Öllum þrennum tónleikum söngkonunnar í borginni var aflýst í kjölfarið og rúmlega hundrað níutíu og fimm þúsund tónleikagestir sátu eftir með sárt ennið, þar á meðal fjöldi Íslendinga. Swift sagði það hafa verið mikið áfall að þurfa að aflýsa tónleikunum. Henni hafi verið brugðið vegna hryðjuverkaógnarinnar og mikill ótti hafi gripið hana. Hún kvaðst haldin samviskubiti gagnvart öllu því fólki sem keypti miða á tónleikana en sagðist þakklát stjórnvöldum fyrir inngripið, skárra væri að syrgja tónleikana en fjölda mannslífa. Þrír menn voru upphaflega handteknir en Beran A var ákærður ásamt öðrum jafnaldra sínum, manni að nafni Arda K. Hann er sakaður um að vera hluti af hryðjuverkahópi sem hafði tengsl við Íslamska ríkið. Saman eru þeir taldir hafa skipulagt fleiri árásir, meðal annars í Mekka, Istanbúl og Dúbaí. Mennirnir geta átt yfir höfði sér 20 ára fangelsi verði þeir dæmdir sekir. Búist er við að réttarhöldin standi til loka maí.

Share this article