Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Flugvellinum í El Paso lokað vegna drónaflugs mexíkóskra eiturlyfjahringa

  • What: The El Paso airport was temporarily closed due to drone activity by Mexican drug cartels.
  • Impact: Flights were disrupted, but the airport has since reopened and authorities claim there is no ongoing threat.
Read Full Article →

Flugvöllurinn í El Paso í Texas hefur verið opnaður aftur eftir að hafa verið óvænt lokað fyrr í dag vegna drónaflugs mexíkóskra eiturlyfjahringja. Samgönguráðherra Bandaríkjanna segir flugyfirvöld og varnarmálaráðuneytið hafa brugðist hratt við og að engin hætta sé á ferðum. Engin hætta steðjar að Lofthelginni í kringum alþjóðaflugvöllinn í El Paso í Texas í Bandaríkjunum var lokað í morgun . Flugmálastofnun Bandaríkjanna tilkynnti óvænt um tíu daga lokun Nokkrum klukkutímum síðar var flugvöllurinn opnaður aftur. Sean Duffy, samgönguráðherra, sagði Flugmálastofnunina og Varnarmálaráðuneytið hafa brugðist hratt við þegar drónar á vegum mexíkóskra eiturlyfjahringja hafi rofið bandaríska lofthelgi. Duffy sagði enga hættu steðja að farþegaflugi. El Paso er á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Ferðaplön margra, báðum megin við landamærin, röskuðust. „Þetta hefði aldrei átt að gerast“ Í umfjöllun The New York Times um málið vitnar fjölmiðillinn í tvo einstaklinga sem hafi eftir upplýsingum frá stjórnvöldum að lokunin væri vegna þess að varnarmálaráðuneytið hafi verið að prófa nýja tækni til að verjast drónum. Hún geti skapað áhættu fyrir aðrar flugvélar á svæðinu. Borgarstjóri El Paso sagði á blaðamannafundi að ekki lægi fyrir af hverju flugmálastofnunin hefði gripið til þessara róttæku aðgerða og gagnrýndi samskiptaleysi við flugmálayfirvöld og alríkisstjórnina. Aðgerðirnar hefðu verið óþarfar og valdið stjórnleysi og ruglingi. Þær hafi meðal annars valdið því að færa þurfti sjúkraflug til annarra borga. „Ég vil vera mjög, mjög, mjög skýr þegar ég segi að þetta hefði aldrei átt að gerast. Það er ekki hægt að loka lofthelgi yfir stórri borg án þess að ráðfæra sig við borgaryfirvöld, yfirstjórn flugvallarins og heilbrigðisyfirvöld.“

Share this article