Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 8:10 Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Fyrrverandi utanríkisráðherra segir grunnregluna vera þá að umsóknarríki verði að innleiða allt regluverk Evrópusambandsins. mbl.is/Hjörtur Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Kristrún vill sjálf dæma Daði Már: Kostar um hálfan milljarð » Fleiri tengdar fréttir Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um áframhald aðildarviðræðna að Evrópusambandinu, ESB, er bæði gölluð og byggist auk þess á misskilningi. Ekki liggur fyrir hver samningsmarkmið Íslands eru og ekki heldur hvað við taki, verði tillagan felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta segir Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi utanríkisráðherra í umsögn sinni um þingsályktunartillöguna, en það var hann sem dró umsóknina til baka, en þá gegndi Gunnar Bragi embætti utanríkisráðherra. Gunnar Bragi segir að það sé misskilningur að umsókn Jóhönnustjórnarinnar að ESB sé enn virk, enda hafi ríkisstjórnin sem við tók slitið viðræðunum. Við því hafi stjórnvöld ESB brugðist bréflega og sagst virða vilja íslenskra stjórnvalda í því efni. Bendir hann á að í umsögn Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, til Alþingis um þingsályktunartillöguna sé staðfest að Ísland hafi dregið aðildarumsókn sína til baka árið 2015 og því sé rangt að halda því fram að um framhald viðræðna yrði að ræða. „Það skal viðurkennt að það tók embættismenn Evrópusambandsins nokkurn tíma að viðurkenna ákvörðunarrétt og fullveldi íslenskra stjórnvalda og fjarlægja Ísland af listum, kortum o.þ.h. á vegum ESB. Hefur Ísland ekki verið meðal umsóknarríkja eða viðræðuríkja undanfarin ár,“ segir Gunnar Bragi í umsögn sinni. Hann segir þó fyrstu hugmyndir að orðalagi bréfsins hafa verið beinskeyttari en niðurstaðan varð. „Orðalag bréfsins varð til í samskiptum utanríkisráðuneytisins og embættismanna Evrópusambandsins en þegar ákvörðun ríkisstjórnarinnar lá fyrir varð uppi fótur og fit í Brussel sem áleit þetta gríðarlega höfnun. Því var milt orðalag notað en embættismönnum á Íslandi og meginlandi Evrópu sem og stjórnmálamönnum var ljóst hver skilningur og vilji íslenskra stjórnvalda var,“ segir Gunnar Bragi. Hann segir enn fremur að hann hafi óskað eftir öllum gögnum frá utanríkisráðuneytinu varðandi aðildarumsóknina og lúkningu hennar á þeim tíma er hann var utanríkisráðherra. Meðal þess sem óskað hafi verið eftir voru öll minnisblöð, tölvupóstar o.þ.h. sem fóru á milli embættismanna ESB og Íslands. Þessa hafi hann óskað fyrir rúmu ári, en utanríkisráðuneytið hafi neitað að afhenda honum gögnin, enda þótt hann hafi sjálfur verið utanríkisráðherra á þeim tíma þegar gögnin urðu til. Kveðst hann hafa falið lögmanni sínum að krefja ráðuneytið um téð gögn. Gunnar Bragi segir að orðalag spurninganna í þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar byggist á þeim misskilningi að umsóknin hafi ekki verið dregin til baka og sé þ.a.l. rangt. Bendir hann á að í greinargerðinni sem fylgi með sé ekki greint frá því hvað við taki fari svo að þjóðin hafni því að taka upp aðildarviðræður við ESB. Utanríkismálanefnd Alþingis þurfi að upplýsa hvað við taki fari svo að tillagan verði felld. Hann segir einnig dapurlegt að ekki komi fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni um hvað ætti í raun að semja við ESB. Bendir hann á að grunnreglan sé sú að umsóknarríki að ESB yrði að innleiða regluverk ESB og viðræður myndu einungis snúast um á hvaða tíma Ísland myndi taka upp lög og reglur ESB að fullu. „Grunnreglan er því eingöngu sú að umsóknarríkið verður að innleiða og beita öllu regluverki ESB og viðræðurnar snúast um hvernig það verður gert. Ætla verður að mistök hafi orðið við gerð greinargerðarinnar þar sem ekki er fjallað um þessa staðreynd, því annað væri blekking,“ segir Gunnar Bragi í umsögn sinni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Framsóknarflokkurinn skorar á forsætisráðherra Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Kristrún vill sjálf dæma Daði Már: Kostar um hálfan milljarð » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi 16 konur létust í lestarslysinu Arsenal án tveggja lykilmanna í Madríd Aðsend grein: Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Ferðamenn ganga of nærri villtum dýrum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin Friðarviðræður í járnum um sinn Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Vesturlandsvegur skal varinn Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi 16 konur létust í lestarslysinu Arsenal án tveggja lykilmanna í Madríd Aðsend grein: Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Ferðamenn ganga of nærri villtum dýrum Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Vesturlandsvegur skal varinn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Vesturlandsvegur skal varinn Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 „Ég hef verið í byssudótinu í 40 ár“ Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Leyfir sér að vera bjartsýnn um ásetning oddvita Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Maðurinn fannst látinn við Háafoss Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“

Share this article