Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu

  • What: Staff at Landspítalans hospital in Fossvogur, Iceland, are demanding action due to unsafe conditions.
  • Impact: The conditions are putting patients and staff at risk due to overcrowding and understaffing.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.2.2026 | 19:39 Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Starfsfólk krefst aðgerða. mbl.is/Eyþór Starfsfólk bráðamóttökunnar kom saman á fundi á Grand Hotel síðdegis í dag þar sem þau lýstu slæmum aðbúnaði og vinnuaðstæðum. „Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu,“ hefst ályktun starfsfólks bráðamóttökunnar sem var samþykkt á fundinum. Í ályktuninni kemur fram að daglegur fjöldi innlagðra sjúklinga sé langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfi þola. Afleiðingin af því er að ekki sé hægt að tryggja öryggi sjúklinga, starfsfólks, sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í yfir eitt ár. 100 sjúklingar vistaðir í rými fyrir 36 „Landlæknir staðfesti í minnisblaði 2. júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar og að hvorki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga né gæði þjónustu. Landlæknir sagði á þeim tíma að í raun væri réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna en viðurkenndi jafnframt að það væri ekki raunhæfur kostur þar eð deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu,“ segir í ályktuninni. Segir í ályktuninni að yfirlýsingar landlæknis hafi verið hundsaðar en síðan hafi staðan versnað. „Yfir 100 sjúklingar eru að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36. Einangrun er ómöguleg, órólegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngum bráðamóttökunnar með augljósri bruna- og sprengihættu,“ segir enn fremur. Þá er tekið fram að starfsfólk neyðist til að starfa við aðstæður sem gangi gegn faglegri þekkingu þess og viðurkenndum viðmiðum um góða og örugga heilbrigðisþjónustu. Frétt af mbl.is „Hvar eru þessir eftirlitsaðilar?“ Krefjast aðgerða Starfsfólk krefst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað. Krefst starfsfólk þess að þeir sem beri lögbundna ábyrgð bregðist við með fimm aðgerðum: Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar. Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum. Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta og smitvarna. Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla. Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga. Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku. „Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður. Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir,“ segir að lokum. Ályktunin var send til Embættis landlæknis, Vinnueftirlitsins, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Persónuverndar, forstjóra Landspítalans, heilbrigðisráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, Velferðar- og fjárlaganefndar Alþingis. Grátleg niðurstaða hjá Hauki Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Veittist að barnsmóður sinni og hélt henni fastri Afhroð Breiðabliks í Svíþjóð Tilgangurinn að ná til einstaklinga snemma ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Allt var stöðvað: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ „Hvar eru þessir eftirlitsaðilar?“ Ná nákvæmari vöktun á landinu Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Grátleg niðurstaða hjá Hauki Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Veittist að barnsmóður sinni og hélt henni fastri Afhroð Breiðabliks í Svíþjóð Tilgangurinn að ná til einstaklinga snemma ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert „Við erum niðurbrotin“ Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust Nýtt framboð í Grímsnesinu Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article