Innlent | mbl | 29.4.2026 | 12:00 Klám er undirstöðuvandamálið Ungmenni upplifa pressu til að stunda kynlíf, og prófa kyrkingartök og líkamlegar meiðingar í samförum. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Klám er undirstöðuvandamálið þegar kemur að kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna, sérstaklega fyrir stráka. Þetta er meðal þess sem fram kom á ungmennaþingum á vegum Barnaheilla, sem haldin voru með styrk frá dómsmálaráðuneytinu á sex stöðum á landinu frá febrúar til apríl og í niðurstöðum þeirra . Alls tóku um 300 nemendur þátt á Suðurnesjum í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, Selfossi, Akureyri og Ísafirði. Ungmennin töluðu um að erfitt sé að segja frá og ef þau segi frá sé þeim kannski ekki trúað. Þau kalla eftir fræðslu fyrir þá sem beita ofbeldi líka og telja að fullorðnir átta sig ekki á því hvað ofbeldi í samböndum sé algengt. Þeir verði að passa að gera ekki lítið úr upplifun ungmenna og eigi ekki að ákveða hvernig þeim líður. Á ungmennaþingunum komu saman nemendur úr efstu bekkjum grunnskóla og úr framhaldsskólum, og var kynjaskipting frekar jöfn. Unnið var með tengiliðum á svæðunum ásamt starfsfólki sveitarfélaganna sem vinnur með ungu fólki. Niðurstöður ræddar á málþingi Niðurstöður ungmennaþinganna voru birtar á málþingi Barnaheilla í morgun, þar sem fagaðilum, stjórnvöldum og fulltrúum af ungmennaþingunum var boðið að taka þátt í umræðum. Í tilkynningu frá Barnaheillum segir að mikill samhljómur hafi verið um allt land um upplifun unga fólksins af ofbeldi í nánum samböndum. Öll hafi verið sammála um að slíkt væri of algengt og mun útbreiddara en flestir geri sér grein fyrir. Algengt að ungmennum líði sem þau séu undir pressu Ítrekað kom fram að andlegt ofbeldi og stjórnun væru vandamál í samskiptum og að dægurmenning og klám hafi veruleg áhrif á hegðun, framkomu og kröfur í nánum samböndum ungmenna. Tæknin hafi þar áhrif, og krafa sé um að vita alltaf hvar hinn aðilinn sé með því að hafa kveikt á staðsetningarbúnaði, t.d. á Snapchat. Þá kom fram að stafrænt ofbeldi sé algengt og mikið um að strákar skiptist á nektarmyndum af kærustum sínum án þeirra vitundar. Þá sé algengt að ungmenni upplifi pressu til að stunda kynlíf, og prófa kyrkingartök og líkamlegar meiðingar í samförum. Sætar stelpur sjái um heimilið og sterkir strákar skaffi Í tilkynningunni segir að bakslag sé í kynjajafnrétti á samfélagsmiðlum, og að kynin fái afar ólík skilaboð. Kynjaðar staðalmyndir liti hugmyndir um hinn fullkomna kærasta og kærustu og íhaldssöm viðhorf séu að laumast inn í samskipti og sambönd ungmenna. Stelpur eigi að líta vel út og vera kvenlegar, sjá um heimilið og börnin og vera tilbúnar að setja kærastann í fyrsta sæti. Strákar eigi aftur á móti að vera karlmannlegir, sterkir, stjórnsamir, sjá um bílinn og það sem bilar, vinna mikið og græða peninga og kaupa blóm og gjafir. Ungmennin krefjast þess að stjórnvöld tryggi betri kynja- og kynfræðslu til allra barna og unglinga. Fræðslan eigi að byrja strax á yngsta stigi, og vera gerð að skyldufagi. Miklu meira fjármagn þurfi í málaflokkinn, forvarnir og fræðslu og auka þurfi aðgengi að fagfólki og úrræðum inni í skólunum. Þá vekur athygli að ungmennin kalli eftir því að stjórnmálamenn þurfi að vera miklu betri fyrirmyndir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Konungurinn skaut á Trump Miðjumaðurinn að skrifa undir á Old Trafford Klám er undirstöðuvandamálið Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“ Markvarsla ársins hjá Viktori Gísla? Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Meintir risaafslættir á heitu vatni Skelfileg staða og engar aðgerðir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Atli og Sunna nýir fréttastjórar Útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Konungurinn skaut á Trump Miðjumaðurinn að skrifa undir á Old Trafford Klám er undirstöðuvandamálið Óttast þrýsting: „Hvað ætla þeir með okkur?“ Markvarsla ársins hjá Viktori Gísla? Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin „Betur má ef duga skal“ Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Atli og Sunna nýir fréttastjórar Útvegar Kvennaathvarfinu náttföt, nærföt og sokka Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“