Innlent | mbl | 29.4.2026 | 15:48 Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Ungmenni á Íslandi lýsa þrýstingi í nánum samböndum, óljósum mörkum og áhyggjum af þróun þegar kemur að bæði kynlífi og öðrum samskiptum. Þau vilja fræðslu um klám, sem þau segja undirstöðuvandamálið varðandi ofbeldi í samböndum. Þetta er meðal þess sem fram kom á ungmennaþingum á vegum Barnaheilla, sem haldin voru með styrk frá dómsmálaráðuneytinu á sex stöðum á landinu frá febrúar til apríl og í niðurstöðum þeirra, sem kynntar voru á málþingi á Nauthóli í Nauthólsvík dag. Alls tóku um 300 nemendur þátt á Suðurnesjum í Hafnarfirði, á Egilsstöðum, Selfossi, Akureyri og Ísafirði, flest í 10. bekk og fyrstu tveimur árgöngum framhaldsskólanna. Frétt af mbl.is Klám er undirstöðuvandamálið Mikið rætt um suð og stjórnun „Þetta er miklu algengara en fólk telur,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum. Hún segir sömu skilaboð hafa borist aftur og aftur frá óháðum hópum. „Þau sögðu ítrekað að þetta væri miklu algengara en fólk átti sig á.“ Kolbrún merkir andlegt ofbeldi áberandi í frásögnum ungmenna. Mikið sé rætt um um suð, stjórnun og að láta hinn fá samviskubit ef hann er ekki til í að prófa eða gera eitthvað eða jafnvel ef hann svarar skilaboðum ekki strax. „En svo erum við með alvarlegri mál og hreinlega gróft kynferðisofbeldi.“ Stafræn samskipti hafa breytt eðli sambanda, að sögn Kolbrúnar. Núna fái ungmennin enga pásu. „Þú átt einhvern veginn alltaf að svara skilaboðum strax og átt jafnvel alltaf að vera með kveikt á því að þú sendir frá þér staðsetningu. Þannig að persónulegt rými verður ótrúlega lítið í rauninni.“ Kolbrún bendir á að þetta geti átt rætur að rekja til uppeldis. Foreldrar reyni eða hafi reynt að fylgjast með börnum sínum og krefja þau stundum um að hafa alltaf kveikt á staðsetningarbúnaði. „Sum venjast því að það sé alltaf fylgst með þeim og finnst þá í lagi að kærastinn eða kærastan geri það.“ Frétt af mbl.is Typpastærð stórt atriði Kalla eftir úrræðum fyrir gerendur Hvert er ákall ungmennanna? „Þau kalla skýrt eftir meiri fræðslu, m.a. um klám. Þau hafa ítrekað og í mörg ár kallað eftir fræðslu. Sérstaklega vekur athygli að þau kalla einnig eftir úrræðum fyrir gerendur. Ungir gerendur þurfa leiðsögn, þetta eru krakkar sem eru að stíga sín fyrstu skref. Það er vont að skilja unga manneskju eftir með hugsunina um það hvort hún hafi farið yfir mörk og vangaveltu um það hvort viðkomandi sé ofbeldismanneskja. Það er ekki sanngjarnt að hún sitji ein með það.“ Frá málþinginu í dag. mbl.is/Karítas Gamaldags kynjahlutverk að verða sýnilegri Niðurstöður ungmennaþinganna benda sterklega til þess að gamaldags kynjahlutverk séu að verða sýnilegri á ný. Nefnir Kolbrún m.a. áhrif frá svokallaðri „tradwife“- og „manosphere“-menningu á samfélagsmiðlum. „Við höfðum auðvitað heyrt aðeins útundan okkur um að þessi menning væri að aukast á samfélagsmiðlum en það kom okkur á óvart að þetta væri orðið svona áberandi og að ungmennin væru að sjá svona ofboðslega skýr kynjahlutverk, alveg rosalega mörg ár aftur í tímann. Svo virðist sem þessi viðhorf séu að læða sér inn í samskipti og sýn ungmenna á sambönd,“ segir Kolbrún en bendir jafnframt á að eldri ungmenni séu oftar gagnrýnni á þróunina en þau yngri. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Eyjamaðurinn fékk uppljómun í miðju viðtali Ný stjórn hugsanlega í burðarliðnum í Danmörku Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Betur má ef duga skal“ Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Eyjamaðurinn fékk uppljómun í miðju viðtali Ný stjórn hugsanlega í burðarliðnum í Danmörku Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klám er undirstöðuvandamálið Vesturlandsvegur skal varinn Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“