- What: The Minningarsjóður Bryndísar Klöru foundation is opening a specialized violence and trauma center for children within Landspítala.
- Impact: The center aims to provide support and care for children who have experienced violence.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 12:35 „Hefur gífurlega mikla þýðingu“ Guðrún Inga Sívertsen, formaður stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Þetta hefur gífurlega mikla þýðingu vegna þess að þegar Minningarsjóðurinn var stofnaður var markmið okkar strax að láta gott af okkur leiða út í samfélagið og halda minningu Bryndísar Klöru á lofti.“ Þetta segir Guðrún Inga Sívertsen, formaður stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru, en á dögunum var fyrirhuguð opnun Bryndísarhlíðar kynnt, sérhæfðrar ofbeldis- og áfallamóttöku fyrir börn innan Landspítala. Ráðgert er að opna Bryndísarhlíð innan tíu mánaða en að starfsemin verði vígð á afmæli Bryndísar Klöru heitinnar, 2. febrúar á næsta ári, þegar hún hefði orðið tvítug ef hún hefði náð þeim aldri. Frétt af mbl.is Skimun fyrir ofbeldi gegnir lykilhlutverki Grípa börnin sem fyrst Guðrún Inga segir eitt af markmiðum sjóðsins vera að auka samkennd og hlúa að börnum í samfélaginu því að ekkert barn eigi að verða fyrir ofbeldi. Á sama tíma vonar hún að í Bryndísarhlíð verði betra aðgengi fyrir börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi og að það verði hægt að grípa þau fyrr og veita þeim þá þjónustu sem þarf. Hún segir verkefnið sem var að fara af stað í grunnskólum sem snýr að skimunum koma mjög sterkt inn. „Það talar einhvern veginn beint inn í þessa starfsemi hér, að það sé hægt að grípa börnin sem fyrst,“ segir Guðrún Inga og bætir því við að í Bryndísarhlíð muni koma saman ólík teymi frá Landspítalanum þannig að öll þjónusta verði í boði á einum stað og ekki þurfi að leita á fleiri. „Draumur okkar er að það muni gerast.“ Frétt af mbl.is Þekkingar- og þjónustusetur í nafni Bryndísar Klöru Leita aðstoðar á lokasprettinum Bryndísarhlíð hefur verið fundið húsnæði að Laufásvegi 81 þar sem gamli Kennaraskólinn var áður. Ríkið á húsið, sem er friðað, en það verður gert upp í samráði við Minjavernd og Minningarsjóðurinn mun kosta viðeigandi breytingar á húsnæðinu. Minningarsjóðurinn hefur að sögn Guðrúnar Ingu fengið gífurlega góðan stuðning úr ýmsum áttum. „Við erum þakklát fyrir það. Við munum leggja ákveðið fjármagn í þetta verkefni og síðan verður reksturinn í höndum stjórnvalda. Nú munum við leita til góðra aðila til að hjálpa okkur á lokasprettinum í fjármögnun á þessu húsi.“ Frétt af mbl.is Tilgangurinn að ná til einstaklinga snemma Frétt af mbl.is Segir Bryndísarhlíð vera stórkostlegt afrek Höfðabakkaljósin verði endurskoðuð Datt í það í þorpinu og rekinn heim „Hefur gífurlega mikla þýðingu“ Ratcliffe biðst afsökunar Ekki í lífshættu eftir alvarlega líkamsárás Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert „Hvar eru þessir eftirlitsaðilar?“ „Forsætisráðherra er bara að ljúga að þjóðinni“ Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Veruleg fjölgun í íslenskum málum hjá Eurojust Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vilja bílhræin burt af lóðinni Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Höfðabakkaljósin verði endurskoðuð Datt í það í þorpinu og rekinn heim „Hefur gífurlega mikla þýðingu“ Ratcliffe biðst afsökunar Ekki í lífshættu eftir alvarlega líkamsárás Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Vilja bílhræin burt af lóðinni Íslendingar hvattir til að huga að heimför Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn 50-60 metra rof á Reynisfjöru Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vilja bílhræin burt af lóðinni Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Væringar í Vopnafjarðarhreppi „Vissulega líf eftir stjórnmálin“ Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson