Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýtt áfallateymi fyrir börn í gamla Kennaraskólanum

  • What: A new trauma center for children, named Bryndísarhlíð, is being established in Reykjavík.
  • Impact: The center will provide support for children who have experienced violence and trauma.
Read Full Article →

„Bryndís sagði við vinkonu sína á Menningarnótt um kvöldið, að hún ætlaði að búa í miðbænum í gömlu timburhúsi. Það er margt að rætast, þó það sé ekki eins og ég hefði viljað það,“ segir Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru. Bryndísarhlíð verður í gömlu timburhúsi við Laufásveg í miðborginni – sem áður hýsti gamla Kennaraskólann. Bryndísarhlíð verður ofbeldis- og áfallamóttaka í nafni Bryndísar Klöru sem lést í kjölfar hnífaárásar á Menningarnótt 2024. „Þetta er erfitt, þetta tekur á. Maður saknar hennar svo mikið, þetta er svo mikil martröð en þögnin hjálpar engum,“ segir Birgir Karl. Minningarsjóður Bryndísar Klöru fjármagnar endurbætur á húsnæðinu og húsgögn og heilbrigðisráðuneytið tryggir fé til rekstursins. Í Bryndísarhlíð er stefnt að því að sameina móttöku fyrir fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi - þar verður ofbeldismóttaka barna, heimilisofbeldisteymi Landspítala, áfallateymi fullorðinna og nýtt áfallateymi barna sem ekki er til í dag. „Það vantar úrræði fyrir börn, hún hefur kannski verið meira dreifð um samfélagið. Við erum með góða áfallameðferð fyrir fullorðna en við getum alltaf gert betur. Og með því að setja alla starfsemina í eitt hús og láta starfsfólkið okkar vinna saman þá held ég að við fáum enn þá öflugri þjónustu,“ segir Nanna Briem, framkvæmdastjóri geðþjónustu Landspítalans. „Þetta verður nauðsynlegt úrræði til að grípa börn sem eru í ofbeldi. Ég sé líka fyrir mér að þetta muni þróast til að grípa fyrr inn í með stuðningi og jafningafræðslu, þetta getur gripið börn - hver sem ástæðan er - börn sem eru í svartholum,“ segir Birgir Karl. Stefnt er að því að opna Bryndísarhlíð innan árs. „Við stefnum á formlega opnun allavega 2. febrúar á næsta ári, þá hefði Bryndís orðið tvítug, “ segir Birgir Karl. Bryndísarhlíð mun sameina móttöku allra sem hefur orðið fyrir ofbeldi undir einum hatti. Búið er að finna starfseminni pláss á Landspítalalóðinni við Hringbraut.

Share this article