Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Segir húsnæðispakka ekki taka á bráðavanda

Read Full Article →

Til stendur að byggja allt að 1.400 íbúðir á næstu árum samkvæmt húsnæðispakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Húsin verða byggð á ríkislóðum í Reykjavík og aðgerðirnar eru liður í áformum stjórnvalda um að skapa jafnvægi á fasteignamarkaði. Áður höfðu meðal annars verið kynntar tillögur um stuðning við leigjendur og fatlað fólk. Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir aðgerðirnar hafa lítil áhrif á fasteignamarkaðinn. „Ég efast ekki um að þetta sé mjög gott innlegg inn í félagslega kerfið en þetta snertir ekki á sjálfum fasteignamarkaðinum,“ segir Monika. „Það sem verið er að kalla eftir eru aðgerðir sem myndu koma til framkvæmda núna. Þessi pakki miðar að náinni framtíð en snertir ekki á markaðinum eins og hann er núna og þeim vanda sem hann stendur frammi fyrir,“ segir Monika. Monika segir að dregið hafi úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Það taki lengri tíma að selja fasteignir en áður. Þá benda tölur Samtaka iðnaðarins til þess að samdráttur sé hafinn í byggingariðnaði. Monika telur mikilvægt að lækka álögur á byggingarmarkaði og bæta lánakjör til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu og framboð. „Rótin á fasteignamarkaði er byggingamarkaðurinn. Og ef honum er ekki sinnt þá þýðir það í náinni framtíð og lengri framtíð þá eru þau ekki að stuðla að stöðugleika á markaði,“ segir Monika.

Share this article