Innlent | mbl | 29.4.2026 | 13:40 Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Erum ansi nærri mörkunum“ Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ „Betur má ef duga skal“ Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ » Fleiri tengdar fréttir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir verðlagsþróun á réttri leið. Ekkert liggur fyrir um frekari bráðaaðgerðir gegn verðbólgunni en forsenduákvæði kjarasamninga stendur tæpt. Samtal hefur verið í gangi við verkalýðshreyfinguna og Samtök atvinnulífsins og segir ráðherrann þá aðila sýna stöðunni fullan skilning. Frétt af mbl.is Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% „Það er óþarfi að draga dul á það að við höfðum áhyggjur af áhrifum olíuverðshækkana. Það að þessi mæling hafi reynst undir væntingum er mjög jákvætt,“ segir Daði Már í samtali við mbl.is. Daði Már segir að þrátt fyrir að verðbólga hafi hækkað undanfarna mánuði, þar til hún hjaðnaði lítillega í morgun, hafi verið vísbendingar um að verðbólguþrýstingur væri ekki mjög mikill. „Undirliggjandi verðbólga hefur verið til þess að gera stöðug og hófleg og við metum það þannig að þetta sé á réttri leið,“ segir hann. Frétt af mbl.is „Betur má ef duga skal“ Kjarasamningar í hættu Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verða teknir til endurskoðunar í september næstkomandi og miðað við stöðu mála gæti reynt á forsenduákvæði þar sem horft verður til 12 mánaða verðbólgu í ágúst 2026. Ef verðbólgan mælist yfir 4,7% verður heimilt að segja upp samningnum ef ekki tekst að semja um viðbragð við forsendubresti. Forsendur teljast þó hafa staðist ef 6 mánaða verðbólga í ágúst mælist 4,4% eða lægri miðað við árshraða. Frétt af mbl.is Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Spurður hvort frekari bráðaaðgerðir stjórnvalda séu á teikniborðinu, eins og til dæmis Framsóknarflokkurinn hefur lagt til, til þess að freista þess að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist, segir Daði: „Ég hef að vísu átt orðastað við Framsóknarflokkinn um þessar hugmyndir þeirra nokkrum sinnum og það hefur þrátt fyrir allt orðið sú jákvæða breyting á þeirra viðhorfi að þeir eru núna farnir að taka fram að þetta þurfi að vera fjármagnað.“ Að sögn Daða er fjármögnun slíkra aðgera forsenda vegna þess að lækkun opinberra gjalda hjálpi ekki í viðureigninni við undirliggjandi vandamál þrátt fyrir að hreyfa vissulega við mældu verðlag. „Þensla og eftirspurn umfram það sem hagkerfið stendur undir er sá undirliggjandi vandi sem við er að eiga. Á þessum tímapunkti beinast því aðgerðirnar einungis að þessum miklu og fyrirvaralausu hækkunum á olíuverði sem að auðvitað allir binda vonir við að verði tímabundnar.“ Aðrar stórtækari aðgerðir sem hefðu áhrif á mælt verðlag þyrftu að vera fullfjármagnaðar, segir ráðherrann. „Það myndi taka lengri tíma að undirbúa. Ef þú finnur hagfræðing sem styður þeirra hugmyndir þá myndi ég gjarnan vilja frétta af því.“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins kynnti efnahagstillögur flokksins fyrr í mánuðinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Engar einfaldar lausnir Daði Már segir aðalaðgerðina vera að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs. „Þannig að ríkissjóður spili með Seðlabankanum og aðilum vinnumarkaðarins í því að ná niður verðbólgu. Það hefur verið sársaukafullt og erfitt en er það sem að við höfum sýnt fram á að við munum standa við,“ segir hann. Spurður hvort það dugi til í ljósi þess þrönga tímaramma sem er fram að endurskoðun kjarasamninga segir Daði Már: „Það er samtal í gangi og það er að ég tel fullur skilningur á því hjá verkalýðshreyfingunni að það eru ástæður fyrir þessu, það er að segja þessar hækkanir á olíuverði, og þess vegna þurfum við að ræða það sérstaklega hvaða aðgerða er skynsamlegt að grípa til. Einhliða fölsun á verðlagi að fyrirmynd Framsóknarflokksins myndi heldur ekki róa aðila vinnumarkaðarins. Þarna þarf skynsamleg skref sem að til lengri tíma leiða til lækkunar verðbólgu. Það er verkefnið.“ Daði Már bindur vonir við samtal ríkis og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við forsenduákvæði kjarasamninga. Morgunblaðið/Eggert Hann segir engar einfaldar lausnir til við flóknum vanda. „Væru þær til væri búið að beita þeim.“ Hefur þú trú á að samtalið sem þú átt nú við aðila vinnumarkaðarins dugi til þess að halda friðinn jafnvel þótt forsendur bresti í haust? „Tíminn verður að leiða það í ljós en samtalið hefur verið mjög uppbyggilegt. Eins og ég sagði áðan þá er skilningur hjá öllum aðilum, bæði verkalýðshreyfingunni og Samtökum atvinnulífsins, á því hvers konar aðstæður valda þessari hækkuðu verðbólgu.“ Frétt af mbl.is „Erum ansi nærri mörkunum“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Erum ansi nærri mörkunum“ Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ „Betur má ef duga skal“ Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Myndskeið: „Ég ætla ekki að fara út í það neitt nánar“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Enn eitt áfallið fyrir Tottenham Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Vildi ekki vera hunsaður lengur Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klám er undirstöðuvandamálið Vesturlandsvegur skal varinn Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Atli og Sunna nýir fréttastjórar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Enn eitt áfallið fyrir Tottenham Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Vildi ekki vera hunsaður lengur Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Atli og Sunna nýir fréttastjórar Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“