Týr á erfitt á köflum með að skilja hvert Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er að fara. Verðbólguvæntingar hafa aukist markvisst eftir febrúarmælingu Hagstofunnar á verðbólgu. Á sama tíma mælist atvinnuleysi meira en sjö prósent og fer vaxandi. Samdráttur var á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Vísbendingar um að hér ríki verðbólgukreppa hrannast upp. Þann 14. janúar svaraði Daði fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á Alþingi með eftirfarandi orðum: „Ég tek á engan hátt undir, og frábið mér í raun, allt tal um kreppuverðbólgu.“ *** Eftir ríkisstjórnarfund á föstudag útskýrði fjármálaráðherra svo fyrir blaðamanni Morgunblaðsins að í rauninni hefði ríkt hér kreppuverðbólga síðustu ár vegna þess að landsframleiðsla á mann hefði verið svo lítil. Eins og fram kemur í nýlegri greiningu verðbréfafyrirtækisins Acro hefur meðaltal hagvaxtar á mann undanfarin tíu ár verið 2,1% þegar litið er framhjá árinu 2020, þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst. Í sama viðtali sagði fjármálaráðherra að verðbólguvæntingar hefðu ekki breyst mikið eftir síðustu verðbólgumælingu. Það er einfaldlega ekki rétt. Þær versnuðu til muna á skuldabréfamarkaði í síðustu viku. *** Fréttamaður Sýnar leitaði einnig viðbragða fjármálaráðherra við verðbólgumælingunni. Daði lét þessi orð falla: „Allir eru með hugmyndir og það hafa til dæmis verið þarna úti hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum til þess að beinlínis lækka verðbólgumælinguna. Vandamálið er bara það að það hjálpar okkur ekki, það er einhvers konar pissa-í-skóinn-sinn hagfræði.“ Ha? Leiðir lækkun opinberra gjalda ekki til minni verðbólguþrýstings í veröld ráðherrans? Hefur aðhald í ríkisfjármálum, í formi lægri gjaldtöku samhliða hagræðingu, ekkert að segja í þessum efnum – er það bara frestun á vandanum, svo vísað sé til líkingarinnar sem er Daða svo hugleikin? Eru auknar álögur á vinnandi fólk eina svarið? Týr botnar ekkert í fjármálaráðherranum. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum VIðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 4. september 2026.