Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.4.2026 | 19:41 Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi Einar Þorsteinsson kynnti stefnumálin á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Karítas Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Beint: Kosningafundur Viðskiptaráðs Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert » Fleiri tengdar fréttir Ef Framsóknarflokkurinn í Reykjavík nær ekki meira fylgi en nýjustu kannanir gefa til kynna mun meirihlutinn í borginni halda velli, að sögn Einars Þorsteinssonar, oddvita Framsóknar í borginni. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun mælist flokkurinn með 3,9% fylgi. „Þá mun þessi vinstri meirihluti halda og Viðreisn mun líklega ganga í hann, enda systurflokkar í ríkisstjórn. Þannig að eina leiðin til þess að fella þennan meirihluta og skapa tækifæri fyrir nýjan meirihluta er að fylkja sér að baki Framsókn,“ segir Einar í samtali við mbl.is. Fyrr í dag blés Framsókn til blaðamannafundar í Elliðaárdal þar sem farið var yfir helstu áherslumál flokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Á fundinum voru línurnar lagðar fyrir komandi kjörtímabil. Á meðal stefnumála má nefna lækkuð fasteignagjöld, a.m.k. eitt bílastæði á íbúð, eina fría tómstund á hvert barn, hverfahátíðir í öllum hverfum borgarinnar, frístundastyrki fyrir eldra fólk og margt fleira. Frétt af mbl.is Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Hægt að hagræða og bæta þjónustu Hvernig ætlið þið að fjármagna þessar breytingar og lækka fasteignagjöld samtímis? „Ég hef séð hvernig hægt er að taka til í rekstri borgarinnar. Ég er búinn að gera það einu sinni á þessu kjörtímabili, tók við 16 milljarða halla ríflega og sneri því í 5 milljarða í afgang á 18 mánuðum,“ segir Einar. „Ég held að það séu gríðarleg tækifæri til þess að hagræða í rekstri borgarinnar og bæta þjónustu um leið,“ bætir hann við. Frétt af mbl.is Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða Kominn tími á grænt ljós Hann segir að ráðast þurfi í róttækar breytingar á rekstri borgarinnar sem Framsóknarflokkurinn hafi þegar lagt á borð. Þær breytingar hafi þó ekki fengið fram að ganga. „Reykjavíkurborg er allt of lengi búin að vera á rauðu ljósi þegar kemur að fjármálum borgarinnar, samgöngumálum, skipulagsmálum og þegar kemur að ánægju íbúanna með þjónustu borgarinnar. Það er kominn tími til þess að kveikja á græna ljósinu,“ segir Einar. Þá segir hann flokkinn vilja stytta tíma borgarbúa í umferðinni með því að efla til samtals meðal stóru vinnustaðanna í borginni, háskólana og annara sem geta haft áhrif á umferðarálagið. „Ég tel gríðarlega mikilvægt að við ráðumst í aðgerðir og ráðumst í þetta samtal og samstillum hjartsláttinn í borginni með það að markmiði að draga úr álagstoppum í umferðinni,“ segir hann. Frétt af mbl.is 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Ákall eftir nýjum meirihluta Einar útilokaði svo stjórnarsamstarf með Samfylkingu og segir hana ófæra um að breyta því kerfi sem hún hafi byggt upp á síðastliðnum þrjátíu árum. „Ég tel skýrt ákall frá borgarbúum um að myndaður verði meirihluti með þeim flokkum sem ekki eru í meirihluta núna og það liggur alveg fyrir hvaða flokkar það eru,“ segir Einar. Einar segir að kominn sé tími á grænt ljós í borginni. mbl.is/Karítas Frétt af mbl.is Framsókn útilokar Samfylkingu fyrst flokka Ekki sammála Brynjari Gætir þú séð fyrir þér að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki? „Ég er opinn fyrir öllum mögulegum samstarfsflötum fyrir utan það að starfa með Samfylkingunni en ég hef alveg gagnrýnt Miðflokkinn mjög eindregið þegar kemur að yfirlýsingum hans um samgöngumálin,“ segir hann. Hann segist ekki geta tekið undir orð Brynjars Níelssonar, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi kosningar, um að stefnumál Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar væru af svipuðum meiði. „Ég er nú ekki sammála því. Við sjáum að það er kapphlaup út á hægri vænginn í samgöngumálunum þar sem Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur keppast um hvor er meira á móti borgarlínu. Það er enginn sem talar fyrir málamiðluninni og skynseminni nema Framsókn,“ segir Einar Þorsteisson. Frétt af mbl.is Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Beint: Kosningafundur Viðskiptaráðs Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Stjarnan, staðan er 57:36 „Nákvæmlega það sem við sjáum“ Atlético Madrid - Arsenal, staðan er 0:1 Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi Bruno setur United skilyrði Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi „Betur má ef duga skal“ Vesturlandsvegur skal varinn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Stjarnan, staðan er 57:36 „Nákvæmlega það sem við sjáum“ Atlético Madrid - Arsenal, staðan er 0:1 Kominn með nóg af því að bíða á rauðu ljósi Bruno setur United skilyrði Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Hrein torg, fögur borg Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klám er undirstöðuvandamálið Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins „Hvað er í gangi? Hversu mikið meira þolum við?“ Aðgerðin Grimm: 280 handteknir Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article