Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.5.2026 | 20:55 Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Einar Þorsteinsson Framsóknaroddviti er ómyrkur í máli um milljarðahagnað olíufyrirtækja af lóðasölu, ónýta hugmyndafræði fyrri meirihluta og vegferð sem betur hefði aldrei verið lagt í. mbl.is/Kristinn Magnússon Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Segir ársreikninginn eiga að vera viðvörun Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Íslandsmet í slælegri áætlanagerð » Fleiri tengdar fréttir „Ég setti þetta í úttekt hjá Innri endurskoðun vegna þess að vafi lék á hvort þetta hefði allt saman samræmst sjónarmiðum um að fara vel með almannafé og eignir borgarbúa,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar hjá Reykjavíkurborg, í samtali við mbl.is. Snýst málið um bensínstöðvarlóðir sem olíufélögin og félög tengd þeim hafa selt fyrir rúma fimm milljarða króna og eiga þó enn nokkrar eftir, lóðir sem borgin færði þeim með leyfi til byggingar fjölbýlishúsa. Ekkert hefur enn verið byggt á lóðunum, utan einni þeirra, og bendir Einar á að nú sé það komið fram að olíufélögin hafi innleyst hagnað á sjötta milljarð króna samkvæmt frétt RÚV . „Þessi vegferð Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna, sem hófst á síðasta kjörtímabili, var tilgangslaus. Það markmið var sett að fækka bensínstöðvum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá umferð. Þetta var á þeim tíma sem rafmagnsbílar voru flestir bílar sem seldir voru inn á íslenskan markað og það var fullkomlega ónauðsynlegt að ganga til þessara samninga til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis vegna þess að bensínstöðvar eru deyjandi fyrirbæri og það er náttúrulegur dauðdagi,“ segir Einar, rafmagnsbifreiðar séu að leysa bensínbifreiðar af hólmi. „...eða hafði ekki áhuga á að vita það“ Hann segir þá ákvörðun að gefa eftir byggingarréttinn hafa fært olíufélögunum gríðarleg verðmæti „enda hafa þau flest stofnað fasteignafélög eða komið þessu í annarra hendur og innleyst hagnað. Þessi hagnaður kemur bara úr sameign borgarbúa og mér finnst þetta verkefni sorglegt dæmi um hvað hugmyndafræði þessara flokka getur leitt borgina í miklar ógöngur,“ segir hann enn fremur. Einar segir það glögglega hafa komið fram í skýrslugerð Innri endurskoðunar að borgin hafi ekki verðmetið lóðirnar nægilega. „Hún áttaði sig ekki á því einu sinni hvaða verðmæti hún væri að færa í hendur olíufélaganna, eða hafði ekki áhuga á að vita það. Ég gagnrýni olíufélögin ekki fyrir að ganga að þessum samningum, enda eru þau bara í viðskiptum að þjóna hagsmunum sinna hluthafa, en borgarfulltrúar eiga að gæta hagsmuna borgarbúa og það var ekki gert í þessu máli,“ segir oddvitinn. Aðspurður segir hann eflaust margar skýringar á því hvað valdi hægagangi framkvæmdanna, það verði þeir sem haldi um þessar byggingarheimildir í dag að skýra. Tilgangslaus vegferð Spurður út í hvað hann telji hafa verið réttlætanlegt ferli í lóðamálinu svarar Einar því til að það hefði verið að sleppa því að fara í þessa vegferð. „Bensínstöðvar eru alls staðar á leiðinni út, þær eru að breytast í hleðslustöðvar og eru þá bara ný þjónusta inni í hverfunum með annarri nærþjónustu sem gagnast íbúum, svo sem kaffihúsum svo eigendur rafmagnsbíla geti fengið sér bolla á meðan þeir hlaða bílana. Þetta var tilgangslaus vegferð en hugmyndafræðin um að berjast gegn loftslagsbreytingum með áhættuleiðöngrum sem þessum er á kostnað borgarbúa. Það sem við sjáum gerast annars staðar er að bensínstöðvalóðum er breytt í hleðslustöðvalóðar eða aðra innviði en í staðinn var farin fullkomlega ónauðsynleg leið,“ segir Einar. Nefnir hann tvö önnur dæmi þar sem hugmyndafræði Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna, nú Vinstrisins, hafi leitt borgina í ógöngur. „Til dæmis að ráðast í að byggja leikskóla með lágu kolefnisfótspori. Það er ekki praktískt verkefni, það er hugmyndafræðileg áhættufjárfesting að kaupa ónýtt hús og reyna að endurbyggja það með eins lágu kolefnisfótspori og hægt er. Það átti að kosta brotabrot af því sem það kostaði á endanum, núna er kostnaðurinn kominn í um þrjá og hálfan milljarð og það er líklega hægt að byggja fjóra leikskóla fyrir þennan eina sem er minnisvarði um vanhæfni þessa meirihluta,“ segir Einar og nefnir búsetukjarna fyrir fatlað fólk sem reisa hafi átt með sama hætti. Fatlað fólk sitji á hakanum „Hann kostaði umtalsvert meira en hann hefði þurft að kosta og tók þriðjungi lengri tíma að byggja hann. Á meðan bíður fatlað fólk eftir búsetuúrræðum og börn og foreldrar bíða eftir að börnin komist inn á leikskóla. Þarna er misfarið með almannahagsmuni og þessa hugmyndafræði þarf að kjósa út úr borginni sem fyrst,“ segir Einar Þorsteinsson Framsóknaroddviti að lokum og vísar til eftirfarandi klausu í úttekt Innri endurskoðunar um málið: Þar sem ekki var framkvæmd fjárhagsleg greining á mögulegum verðmætum einstakra lóða, eða greining á mögulegum verðmætum sem gætu falist í uppbyggingarheimildum á einstökum lóðum, hafði Reykjavíkurborg hvorki hlutlægar upplýsingar um hvaða verðmæti væri verið að láta af hendi né hvaða fjármuni væri verið að gefa eftir gagnvart lóðarhöfum. Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Segir ársreikninginn eiga að vera viðvörun Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Íslandsmet í slælegri áætlanagerð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Njarðvík - Haukar, staðan er 66:67 „Þetta kom flatt upp á okkur“ Tottenham - Leeds, staðan er 1:1 Hantaveiruskipið siglir næst til Rotterdam Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Njarðvík - Haukar, staðan er 66:67 „Þetta kom flatt upp á okkur“ Tottenham - Leeds, staðan er 1:1 Hantaveiruskipið siglir næst til Rotterdam Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Skellti sér sextugur í myndlistarnám Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article