- What: A database will be created to store information about children in Iceland.
- Impact: The database aims to provide a comprehensive overview of school attendance.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 22:36 Gagnagrunnur mun varðveita upplýsingar um börn Greint var frá því í gær að ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. mbl.is/Árni Sæberg Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir það grundvallaratriði að komið verði í gegn miðlægum nemendagrunni sem m.a. veiti heildarsýn yfir skólasókn barna. Greint var frá því í gær að ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu mörg börn á Íslandi sækja ekki skóla þrátt fyrir skólaskyldu í landinu. Frétt af mbl.is Vita ekki hversu mörg börn sækja ekki skóla Miðlægur grunnur veiti heildarsýn Það kom fram í svörum Ingu við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanni Miðflokksins, í gær. Kom þar aukinheldur fram að mennta- og barnamálaráðuneytið safni ekki með kerfisbundnum hætti upplýsingum frá sveitarfélögum um skólasókn barna og því liggi ekki fyrir upplýsingar um hversu mörg börn sóttu ekki skóla við upphaf skólaskyldu undanfarin fimm ár. Tekið var fram í svörum Ingu að miðlægur nemendagrunnur ætti að veita ráðuneytinu heildarsýn yfir stöðu málaflokksins. Þau gögn mætti síðan nota til að gæði skólastarfsins, þjónustu, stefnumótun og forgangsröðun stjórnvalda í skólamálum. Frétt af mbl.is Sum börn ekki mætt í skólann í tvö ár Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðhera. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Algjört grundvallaratriði“ Blaðamaður mbl.is náði tali af Ingu fyrr í dag og spurði þá hvort tölur um skólasókn barna yrði að finna í hinum fyrirhugaða miðlæga gagnagrunni. „Þær tölur verða algjörlega þar og það er bara algjört grundvallaratriði að við komum því í gegn.“ Inga segir málið vera komið inn til þingsins. „Ég er búin að kynna það þannig að ég fer að mæla fyrir þessu frumvarpi vonandi bara í næstu viku.“ Auðveldara að fylgjast með „týndu börnunum“ Hún segir að gagnagrunnurinn muni skipta sköpum fyrir allar skráningar í málaflokknum. Hann muni t.d. fylgja börnum hvert sem þau flytja á landinu og varðveita þær upplýsingar. „Þá verður barnið skráð í því sveitarfélagi sem það býr og það verður mun auðveldara einmitt að fylgjast með týndu börnunum okkar sem að, einhverra hluta vegna, eru eins og enginn viti af á köflum.“ Gagnagrunnur mun varðveita upplýsingar um börn Flottur sigur í fyrsta leik Guðrúnar 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi Liverpool fyrst til að vinna útisigur á nýliðunum Reynir átti góðan leik ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Vísað úr landi degi eftir þjófnað Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Gagnagrunnur mun varðveita upplýsingar um börn Flottur sigur í fyrsta leik Guðrúnar 29% fyrirtækja fá starfsfólk seint úr fæðingarorlofi Liverpool fyrst til að vinna útisigur á nýliðunum Reynir átti góðan leik ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert „Mjög ánægð að fá öll börnin saman aftur“ Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Ólína tekur við sem settur rektor Ríflega tvöfalt fleiri börn á BUGL vegna átröskunar Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Vísað úr landi degi eftir þjófnað Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar