Innritun barna í grunnskóla fer í fyrsta sinn fram með miðlægum hætti. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að þetta séu tímamót því í fyrsta sinn sé hægt að fylgjast með því á landsvísu að öll börn á skólaskyldualdri séu í skóla, og tryggja að mikilvæg gögn fylgi barninu í gegnum alla skólagönguna. Hingað til hafa gögn um grunnskólabörn verið vistuð í mörgum ótengdum kerfum sveitarfélaga og þegar barn hefur skipt um skóla hafa upplýsingar þurft að berast handvirkt á milli. Með nýju kerfi, Nemedagrunni, sé dregið úr hættu á því að mikilvæg þjónusta rofni. „Með nemendagrunni náum við loksins utan um öll börnin okkar og getum tryggt að þau týnist ekki í kerfinu – og að við getum fylgst með stöðu þeirra til dæmis í gegnum okkar nýja Matsferil,“ er haft eftir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. „Við ætlum að halda fast og vel utan um gögnin og með því að nýta þessi frábæru verkfæri saman fáum við nú loksins ekki bara upplýsingar um stöðu hvers barns heldur heildarmynd af stöðu menntakerfisins – mynd sem hefur ekki verið nægilega skýr fram til þessa. Þau gögn sem þarna verða til eru forsenda þess að við sjáum hvar skórinn kreppir og getum beint aðgerðum á þá staði þar sem þeirra er þörf. Ég mælti nýverið fyrir frumvarpi sem leggur grundvöll að frekari söfnun og vinnslu gagna úr grunninum, menntakerfinu og þar með öllu samfélaginu til hagsbóta en með öryggi og persónuvernd í fyrirrúmi.“