Nauðsynlegt er að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna svo hægt sé að grípa fyrr inn í og mögulega minnka aðra biðlista í heilbrigðiskerfinu. Þetta segja Telma Sigtryggsdóttir, formaður heilbrigðishóps Örykjabandalags Íslands (ÖBÍ) og Heyrnarhjálpar, og Kristján Sverrisson, forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ). ÖBÍ réttindasamtök færðu HTÍ nýjan skimunarmæli sem nýtist við heyrnarskimun skólabarna í tilefni af degi heyrnar sem var á þriðjudaginn. „Með því viljum við hvetja yfirvöld til að hefja skimun á heyrn grunnskólabarna á ný,“ segir Telma. Með þessu sé hægt að grípa börn fyrr sem mælast með slæma heyrn og senda í frekari og betri mælingu. „Og þá jafnvel minnka biðlistar annars staðar,“ segir Telma sem tekur fram að grunur sé um að börn með slæma heyrn séu oft á biðlistum fyrir aðrar greiningar á borð við ADHD , málþroskaröskun eða önnur hegðunarvandamál. Heyrn grunnskólabarna ekki skimuð í um 20 ár „Miðað við aðrar þjóðir í kringum okkur þá sýna tölurnar okkur að um 70 til 90 börn í hverjum árgangi eru heyrnarskert,“ segir Telma. „HTÍ er með um 15 til 20 börn í hverjum árgangi sem sýnir að við erum ekki að grípa þessi börn.“ Reglubundin skimun myndi draga fram raunverulegar tölur yfir börn sem eru heyrnarskert að mati Telmu. Hægt væri þá að byggja á þeim tölum en ekki færi fram reglubundin skimun á heyrn barna. Því var hætt fyrir um 20 árum síðan „Við sem erum eldri munum eftir svona heyrnarskimun á grunnskólaaldri,“ segir Telma. „Á þessum tíma voru skimunartækin flóknari og fyrirferðameiri og það þurfti meiri sérfræðiþekkingu til að framkvæma skimun,“ segir Telma. Tekin hafi verið ákvörðun um að skimun borgaði sig ekki vegna þessa þar sem uppfæra hafi þurft tækjakost með tilheyrandi kostnaði. Þurfa um 10 til 15 tæki til að skima allt landið Kristján Sverrisson, forstjóri HTÍ, segist þakklátur gjöf ÖBÍ og að HTÍ hafi barist fyrir því að heyrnarskimun verði innleidd á nýjan leik síðan því hafi verið hætt. „Þessi tæki eru tímasparandi og það þarf ekki neina sérfræðimenntun eða þjálfun til að vinna með mælana og ég hef boðist til þess að okkar starfsfólk geti heimsótt skóla og mælt,“ segir hann en tekur fram að skólahjúkrunarfólk hafi einnig komið að máli við hann og lýst yfir áhuga á að framkvæma skimanir. Kristján hvetur fleiri samtök til að fylgja fordæmi ÖBÍ. Gjöfin hafi verið táknræn þar sem um 10 til 15 tæki þurfi til þess að manna þau svæði sem skólahjúkrun nær yfir á landinu. Yfir 100 grunnskólar séu á landinu og vitað sé af heyrnarskertum börnum í 80 þeirra. Hann grunar þó að fleiri börn séu með ógreinda heyrnarskerðingu í fleiri skólum. Nauðsynlegt sé þó að hefja skimanir að nýju svo hægt sé að grípa inn í.