Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Viðskiptablaðið

Smásalar flæða inn á verslunar­vett­vang TikTok

  • What: TikTok expands in-app shopping for brands
  • Impact: Retailers and users on TikTok
Read Full Article →

Fjölmörg fyrirtæki á borð við Ralph Lauren, Olaplex og Ulta Beauty hafa nýlega byrjað að bjóða upp á þann möguleika að versla vörur beint í gegnum samfélagsmiðilinn TikTok. Á vef WSJ segir að Bandaríkjamenn noti þennan valmöguleika í auknum mæli. Frá því að TikTok Shop hóf starfsemi í Bandaríkjunum seint árið 2023 hafa vinsældir vettvangsins aukist til muna. Útgjöld á TikTok Shop jukust um 46% á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Consumer Edge er vettvangurinn vinsælastur meðal ungs fólks en neysla meðal þeirra sem eru eldri en 45 ára hefur einnig aukist. Sjá einnig Bjarga rekstri TikTok í Bandaríkjunum Heildarsala í gegnum TikTok Shop í Bandaríkjunum nam 4,9 milljörðum dala á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þrátt fyrir aukninguna er hlutdeild vettvangsins aðeins um 1% af heildarsmásölu Bandaríkjanna og nemur aðeins 3% af heildarnetverslun. Sérfræðingar spá því hins vegar að hlutdeildin gæti fjórfaldast á næsta ári og náð um 10% af markaðshlutdeild árið 2028.

Share this article