Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Líkur á misnotkun veikindaréttar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 8:00 Líkur á misnotkun veikindaréttar Veikindi starfsmanna Reykjavíkurborgar hafa kostað borgarsjóð á bilinu sex til sjö milljarða króna árlega undanfarin ár, segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Veikindi starfsmanna Reykjavíkurborgar hafa kostað borgarsjóð á bilinu sex til sjö milljarða króna árlega undanfarin ár. Auðvitað er bagalegt þegar fólk lendir í langtímaveikindum. Í einhverjum tilvikum getur það snúið að óheilnæmu skólahúsnæði, en það eru líka sterkar vísbendingar um að fólk sé að misnota veikindaréttinn og það er nokkuð sem þarf að koma í veg fyrir að gert sé.“ Þetta segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, við Morgunblaðið. Á mánudag birti Reykjavíkurborg ársreikning fyrir rekstrarárið 2025. Rekstur borgarsjóðs reyndist neikvæður sem nam 5,3 milljörðum króna. Athygli vakti hátt veikindahlutfall hjá stærstu sviðum borgarinnar, eða 7,9% á skóla- og frístundasviði og 8,3% á velferðarsviði, en hæstu veikindatölurnar eru í leikskólum borgarinnar. Í skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs með ársreikningi var kallað eftir greiningum og aðgerðum vegna veikindahlutfallsins. Stjórnunarvandi í borginni Spurð hvernig unnt sé að koma í veg fyrir misnotkun veikindaréttarins segir Hildur að það snúi að borgaryfirvöldum. „Þetta háa veikindahlutfall gefur til kynna stjórnunarvanda hjá borginni, að starfsfólk veikist í of miklum mæli í störfum fyrir borgina eða komist hreinlega upp með að misnota veikindaréttinn. Það eru dæmi um öfluga stjórnendur sem halda veikindahlutfalli vel niðri, í 3-4%, með virku aðhaldi að sínu starfsfólki. Það er til mikils að vinna að grípa til aðgerða svo draga megi úr veikindum. Árangur af slíkri vinnu gæti skilað borginni miklum fjárhagslegum ávinningi, en auðvitað starfsfólkinu líka bættri líðan,“ segir Hildur. „Hvert prósentustig í veikindum hjá borginni kostar borgarsjóð tæpan milljarð. Það þarf því ekkert að fjölyrða um þann mikla ávinning sem fengist af því að taka þessi mál föstum tökum. Þetta er eitt af mörgum augljósum tækifærum til að bæta rekstur borgarinnar,“ segir hún. Hildur nefnir að fjármála- og áhættustýringarsvið borgarinnar hafi bent á það í athugasemdum við ársreikninginn að til mikils sé að vinna að fara í greiningar og mat á hinum háu veikindatölum með það að markmiði að lækka veikindahlutfallið. Morgunblaðið fjallaði sl. haust um veikindahlutfall starfsmanna Reykjavíkurborgar sem reyndist 7,5% árið 2024. Það jafngilti því að 825 borgarstarfsmenn hefðu legið veikir heima hvern virkan dag það ár. Veikindahlutfall borgarstarfsmanna er mun hærra en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði. Úttektar óskað „Ég hef kallað eftir úttekt innri endurskoðunar á veikindum innan borgarkerfisins en sú úttekt hefur ekki farið fram. Ég kallaði jafnframt eftir minnisblaði borgarlögmanns um veikindaréttindi starfsmanna borgarinnar. Það barst nýverið og er nú í rýni. Við sjálfstæðismenn ætlum okkur að taka á þessum vanda,“ segir Hildur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Í nýtt starf hjá KSÍ Beint: Markmiðadrifið hagkerfi Líkur á misnotkun veikindaréttar Myndskeið: Þrenna Kristals gegn toppliðinu Aðsend grein: Krýsuvíkurleiðin í 40 ár – trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Betur má ef duga skal“ Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Mest lesið Í gær Í vikunni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Blikur á lofti hjá hótelum Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Dönsuðu Lísu í Borgarleikhúsinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Í nýtt starf hjá KSÍ Beint: Markmiðadrifið hagkerfi Líkur á misnotkun veikindaréttar Myndskeið: Þrenna Kristals gegn toppliðinu Aðsend grein: Krýsuvíkurleiðin í 40 ár – trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á misnotkun veikindaréttar Aðgerðin Grimm: 280 handteknir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Mest lesið Í gær Í vikunni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Allt hefur verið afbókað“ Blikur á lofti hjá hótelum Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Dönsuðu Lísu í Borgarleikhúsinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article