Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Danska konan skuldar laun

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 9:40 Danska konan skuldar laun Trine Dyrholm þykir fara á kostum í hlutverki sínu í þáttunum Danska konan. Þeir hafa fengið góðar viðtökur í nokkrum löndum. Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki „Okkur þykir leitt að þetta hafi þróast svona,“ segja Marianne Slot og Carine Leblanc, framleiðendur sjónvarpsþáttanna Dönsku konunnar . Enn hefur ekki tekist að klára allar launagreiðslur vegna framleiðslu þáttanna. Meðal þeirra sem enn hafa ekki fengið greitt er fólk sem vann við hljóð, kvikmyndatöku, tónlist og eftirvinnslu. Þá staðfesti Benedikt Erlingsson, skapari þáttanna, að hann hefði sjálfur ekki fengið greitt. Þó að talsverð kergja sé vegna þessa er samt talið líklegt að hægt verði að klára launagreiðslur. Framleiðendur hafa gengið frá samningi við þá sem eiga inni laun um að þeir gangi fyrir þegar greiðslur berast ef serían verður seld til fleiri landa. Mikil bjartsýni er meðal viðmælenda Morgunblaðsins um að það muni takast enda hafi viðtökur í Danmörku og víðar verið framar björtustu vonum. Yfir 800 þúsund manns hafa horft á fyrsta þátt seríunnar í línulegri dagskrá þar í landi og er þá allt streymi eftir. „Það er engin trygging en til að vel gangi að selja er lykilatriði að viðtökurnar séu góðar. Við höfum fengið mjög góða gagnrýni í Þýskalandi og Frakklandi og þættirnir eru að verða að költ-fyrirbæri í Danmörku. Þetta er mjög frumleg sería og það er eftir því tekið,“ segja framleiðendurnir hjá fyrirtækinu Slot Machine. Gagnrýnandi Morgunblaðsins var afar hrifinn af Dönsku konunni og gaf þáttunum fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. Þær Slot og Leblanc segja að á ýmsu hafi gengið í framleiðslunni sem skýri þessi vandræði. Einn framleiðandi hafi til að mynda helst úr lestinni á ögurstundu. Enn hefur ekki fengist endurgreiðsla á framleiðslukostnaði sem er lykilatriði í framleiðslunni. Í svari frá Kvikmyndamiðstöð Íslands við fyrirspurn blaðsins segir að umsókn hafi verið tekin til yfirferðar. Óskað hafi verið eftir frekari gögnum frá umsækjanda og verði umsóknin tekin til frekari meðferðar þegar þau hafi borist. Framleiðendur eru bjartsýnir á að endurgreiðsla fáist afgreidd á næstunni. Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Danska konan skuldar laun Getum unnið deildina Völsungar styrkja sig í baráttunni 6,3% atvinnuleysi í mars Hneig niður á veitingastað Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ „Börnunum heilt yfir líður illa“ Málin fleiri en koma inn á borð lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Húsnæði Kjötborgar til sölu Líkur á misnotkun veikindaréttar Eldur við söluskála „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Baldur fer til Eyja Beint: Inga Sæland situr fyrir svörum Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Danska konan skuldar laun Getum unnið deildina Völsungar styrkja sig í baráttunni 6,3% atvinnuleysi í mars Hneig niður á veitingastað Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% „Allt hefur verið afbókað“ Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Húsnæði Kjötborgar til sölu Líkur á misnotkun veikindaréttar Eldur við söluskála „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Baldur fer til Eyja Beint: Inga Sæland situr fyrir svörum Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article