Innlent | mbl | 30.4.2026 | 10:03 Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Jón Gnarr í gervi Sonju Báru Baldursdóttur, ásamt bróður hennar Tryggva Má Baldurssyni sem Sigurjón Kjartansson leikur og Gísla Marteini Baldurssyni, sem þó er ekki samfeðra systkinunum. Skjáskot/Rúv. Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Segir örorkubætur á sjálfstýringu Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum » Fleiri tengdar fréttir Rúv greiddi Jóni Gnarr, þingmanni Viðreisnar, fyrir innslag í Vikunni með Gísla Marteini. Þeir Jón og Sigurjón Kjartansson brugðu sér í hlutverk dúettsins Plató í þættinum og hæddust að andstæðingum ESB-aðildar. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins frá 25. mars sl. sem birt var opinberlega í dag. Ingvar Smári Birgisson, stjórnarmaður í Rúv, lagði fram svohljóðandi fyrirspurn: Í þættinum „Vikan með Gísla Marteini“ sem var sýndur föstudaginn 20. mars sl. var sýnt atriði á vegum Tvíhöfða. Í atriðinu vék Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og yfirlýstur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið, sér í hlutverk andstæðings aðildar að Evrópusambandinu og skopstældi þann málstað. Óskað er eftir upplýsingum um hvort Jón Gnarr hafi fengið greitt fyrir að koma fram í Vikunni með Gísla Marteini í umræddum þætti. Sömuleiðis er óskað eftir upplýsingum um hvernig útvarpsstjóri telji það samræmast hlutlægnisskyldum ríkisútvarpsins að þingmaður ríkisstjórnarinnar sé fenginn sem skemmtikraftur í vinsælu dagskrárefni í því skyni að flytja pólitísk skilaboð og hæðast að málstað pólitískra andstæðinga.“ Ritskoða ekki skemmtiatriði Fram kemur að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hafi upplýst að Jón Gnarr, sem jafnframt sé þingmaður, fái, eins og aðrir skemmtikraftar sem séu með skemmtiatriði í þáttum RÚV greitt fyrir sína framkomu í þættinum. Hann sagði jafnframt að skemmtiatriði væru ekki ritskoðuð af RÚV. Sérstakt ákvæði sé í vinnureglum um fréttir og dagskrárefni um takmarkanir á þátttöku frambjóðenda til almennra kosninga í dagskrá RÚV og giltu þau ákvæði einnig um talsmenn mismunandi fylkinga ef um þjóðaratkvæðagreiðslu sé að ræða. Viðmiðunardagsetning í þeim efnum sé sá dagur sem framboðsfrestur rennur út. Útvarpsstjóri sagði jafnframt að ekki hefði verið lagt endanlegt mat á það í tengslum við mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu hverjir skuli teljast talsmenn tiltekinna fylkinga; slíkt verði gert þegar ákvörðun hefur verið tekin um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Alþingi. Í fundargerð er jafnframt bókað að Ingvar Smári hafi gagnrýnt svar útvarpsstjóra en ekki er gerð nánari grein fyrir gagnrýni hans í fundargerðinni. Tengdar fréttir Alþingi Segir örorkubætur á sjálfstýringu Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Ástæðulaust að gera uppvakning úr verðlagseftirlitinu Kallað eftir Kristrúnu í þinginu Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Allt hefur verið afbókað“ Andleg heilsa mælist verri en annarra hópa Segir örorkubætur á sjálfstýringu Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Klám er undirstöðuvandamálið Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“