Innlent | mbl | 30.4.2026 | 22:02 | Uppfært 22:19 Segist ekkert hafa fengið greitt fyrir spaugið Jón Gnarr segir hvorki sig né Sigurjón Kjartansson hafa fengið greitt fyrir framkomu sína. Skjáskot/Rúv. Setja bókamerki Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og þjóðþekktur gamanleikari, segir það rangfærslu að hann hafi fengið greitt fyrir innslag sitt og Sigurjóns Kjartanssonar í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV, þar sem hann brá sér í gervi Sonju Báru Baldursdóttur og gerði gys að andstæðingum ESB-aðildar. Frétt þess efnis birtist á mbl.is fyrr í dag, og byggði sá fréttaflutningur á fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins frá 25 . mars sl. sem birt var opinberlega í dag. Frétt af mbl.is Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Sannleikurinn er nefnilega sá að ég fékk ekkert greitt fyrir þessa framkomu. Og því síður sá Sigurjón krónu. Ég hef oft komið fram í þessum sama þætti og minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma fengið greitt fyrir það eða ætlast til þess að fá greitt,“ segir í Facebook-færslu Jóns. „Þannig að ég sé ekki betur en að fyrirsögnin sé tóm lygi.“ Hann vísar því jafnframt á bug að hann sé yfirlýstur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið, heldur segist aftur á móti opinn fyrir því að vega og meta kosti og galla slíkrar inngöngu. Stangast á við orð útvarpsstjóra Eins og fram hefur komið í fyrri umfjöllunum stendur í fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins frá 25. mars sl. að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri sagði í svari sínu við fyrirspurn Ingvars Smára Birgissonar að Jón Gnarr hefði, eins og aðrir skemmtikraftar sem séu með skemmtiatriði í þáttum RÚV, fengið greitt fyrir sína framkomu í þættinum. Í færslu sinni segist Jón Gnarr hafa komið fram í ótal skemmti- og spjallþáttum á löngum ferli án þess að taka neitt fyrir það og með því reynt að leggja sitt af mörkum til að styðja íslenska dagskrárgerð, innlenda framleiðslu og íslenska tungu. Hann segir það mögulega erfitt fyrir jarðtengda embættismenn, sem aldrei hafi þurft að berjast áfram á hinum frjálsa markaði frumlegrar hugsunar, að skilja fólk eins og hann. „ Ég álasa þeim ekki. Mér er algjörlega frjálst að stunda mína liststarfsemi og hafa af henni tekjur þótt ég sé þingmaður.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Britney Spears ákærð fyrir að keyra undir áhrifum Tilkynnt það snemma af ansi mörgum Hann fékk höfuðhögg en ég veit ekki meir Emily Blunt sökuð um forréttindablindu Segist ekkert hafa fengið greitt fyrir spaugið Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Banaslys í Skorradalsvatni Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Nýjast á mbl.is » Britney Spears ákærð fyrir að keyra undir áhrifum Tilkynnt það snemma af ansi mörgum Hann fékk höfuðhögg en ég veit ekki meir Emily Blunt sökuð um forréttindablindu Segist ekkert hafa fengið greitt fyrir spaugið Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég segi nei“ Hallærisplanið er ekki að virka Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Banaslys í Skorradalsvatni Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir „Ég segi nei“ Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys