Innlent | mbl | 30.4.2026 | 10:01 Andleg heilsa þeirra sem starfa á leikskóla mælist verri en annarra hópa Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum finnur nánast alla daga fyrir átta af níu neikvæðum andlegum einkennum sem spurt er um í könnuninni. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Svarhlutfall Könnunin var ætluð félagsfólki í 43 aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem hafði greitt að minnsta kosti eitt iðgjald síðastliðna sex mánuði og var með netfang eða símanúmer skráð í félagatali stéttarfélagsins, alls 141.165 félagar. Af þeim svöruðu 24.644 félagar. Svarhlutfall var 17,4%. Í þessari skýrslu er svör þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum greind sérstaklega. Alls voru 908 sem starfa á leikskóla og 747 sem starfa í grunnskóla sem svöruðu könnuninni. Tengdar fréttir Leikskólamál Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið » Fleiri tengdar fréttir Níu af hverjum tíu sem starfa í leikskóla eru með 749 þúsund krónur eða lægri atvinnutekjur á mánuði. Helmingur þeirra sem starfa í leikskólum getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. Einnig mælist andleg heilsa þeirra sem starfa á leikskóla verri en annarra hópa. Þá býr um þriðjungur þeirra sem starfa í leikskólum við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Þetta er á meðal niðurstaðna spurningakönnunar meðal félagsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins gerði um stöðu starfsfólks í leik- og grunnskólum. Markmið könnunarinnar var að varpa ljósi á fjárhagsstöðu þeirra sem eru í heildarsamtökunum tveimur en einnig á stöðu þeirra á húsnæðismarkaði og andlega- og líkamlega heilsu. Umtalsverður munur á andlegri líðan eftir hópum Fram kemur að andleg líðan launafólks sé metin í könnuninni með mælitæki sem samanstandi af níu spurningum sem falið sé að meta tíðni neikvæðra andlegra einkenna síðustu tvær vikur. Umtalsverður munur er á andlegri líðan eftir hópum þar sem langhæst hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum býr við slæma andlega heilsu eða tæplega fjórir af hverjum tíu (38%) en sama á við um ríflega fjórðung almennt meðal launafólks (29%) en ríflega fimmtung þeirra sem starfa í grunnskólum (23%). Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum finnur nánast alla daga fyrir átta af níu neikvæðum andlegum einkennum sem spurt er um í könnuninni. Sérstaklega hátt hlutfall finnur nánast alla daga fyrir þreytu og orkuleysi eða 28% (á móti 20% almennt meðal launafólks) og tæplega fimmtungur á í erfiðleikum með svefn nánast daglega (18%). Auk þess er ríflega einn af hverjum tíu þeirra sem starfa á leikskólum sem finnur nánast daglega fyrir áhugaleysi (12%), lystarleysi eða ofáti (11%), líður illa með sjálfan sig (14%) og einbeitingarskorti (13%). Mikill meirihluti þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum eru konur. Ljósmynd/Colourbox Mikill meirihluti konur Þá kemur fram að mikill meirihluti þeirra sem starfi í leik- og grunnskólum sé konur. Innan leik- og grunnskóla starfa í mun meira mæli konur en karlar (94% og 81%). Meira en helmingur þeirra sem starfa í leikskólum eru 40 ára eða yngri (56%) en hlutfallið er lægra meðal þeirra sem starfa í grunnskólum (35%) og að sama skapi er hærra hlutfall í grunnsskólum en leikskólum sem eru 51 árs eða eldri (42% á móti 23%). Hærra hlutfall sér í lagi þeirra sem starfa í leikskólum eru einhleypir foreldrar (13%) en sama á við um 9% þeirra sem starfa í grunnskólum en 7% annars launafólks. Umtalsverður munur á tekjum Þá er bent á að umtalsverður munur sé á atvinnutekjum þeirra sem starfi sér í lagi í leikskólum og annars launafólks innan ASÍ og BSRB. „Níu af hverjum tíu þeirra sem starfa í leikskóla eru með mánaðarlegar atvinnutekjur sem eru 749 þúsund krónur eða lægri (92%) en sama á við um átta af hverjum tíu sem starfa í grunnskólum (80%) en helming annars launafólks (52%),“ segir í skýrslunni. Fjórir af hverjum tíu sem starfa í leikskólum ná ekki endum saman. Ljósmynd/Colourbox 40% ná ekki endum saman Bent er á að munur sé á fjárhagsstöðu bæði þeirra sem starfi í leikskólum og grunnskólum samanborið við launafólk í annars konar störfum þegar litið sé til hlutfalls þeirra sem eigi erfitt með að ná endum saman. „Fjórir af hverjum tíu sem starfa í leikskólum ná ekki endum saman (40%) og sama á við um þriðjung þeirra sem starfa í grunnskólum (33%) en hlutfallið er lægra hjá öðru launafólki (30%). Tæplega helmingur þeirra sem starfa í leikskólum gæti auk þess ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum (49%) en hlutfallið er nokkuð lægra meðal þeirra sem starfa í grunnskólum (37%) og umtalsvert lægra meðal annars launafólks,“ að því er Varða greinir frá. Þriðjungur þeirra sem starfa í leikskólum falla undir skilgreininguna að skorta félags- og efnisleg gæði og sama á við um fjórðung þeirra sem starfa í grunnskólum. Ljósmynd/Colourbox Umtalsverður hluti býr við skort eða verulegan skort Í könnuninni var spurt um efnislega þætti er varða rekstur heimilis eins og að geta greitt reikninga á eindaga, hafa efni á staðgóðri máltíð annan hvern dag, geta skipt út slitnum húsgögnum o.s.frv. Mælingin nær einnig yfir einstaklingsbundna þætti eins og hvort fólk eigi að minnsta kosti tvö skópör sem passa, hitti vini eða fjölskyldu í drykk eða mat mánaðarlega o.fl. Samkvæmt skilgreiningunni býr fólk sem skortir fimm þessara þrettán þátta við skort á efnislegum og félagslegum gæðum og ef fólk skortir sex eða fleiri þætti býr það við verulegan skort. „Niðurstöðurnar sýna að umtalsverður hluti launafólks býr við skort eða verulegan skort á efnislegum og félagslegum gæðum en hlutfallið er hærra meðal þeirra sem starfa, sér í lagi í leikskólum. 34% þeirra sem starfa í leikskólum falla þannig undir skilgreininguna að skorta félags- og efnisleg gæði og sama á við um fjórðung þeirra sem starfa í grunnskólum (25%) en sama á við um ríflega fimmtung annars launafólks innan heildarsamtakanna tveggja (22%),“ segir í skýrslunni. Bent er á að hærra hlutfall leik- og grunnskólastarfsfólks skorti flesta þá þætti sem saman mæli félags- og efnislegan skort en til að mynda séu tæplega fjórir af hverjum tíu þeirra sem starfi í leikskólum sem hafi ekki efni á vikulangri ferð fjarri heimili árlega (37%) og sama eigi við um ríflega fjórðung grunnskólastarfsfólks (28%) en hlutfallið sé lægra hjá öðru launafólki (25%). Þannig er um þriðjungur foreldra sem starfa í leikskóla og ögn lægra hlutfall foreldra sem starfa í grunnskóla sem getur ekki gefið börnunum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja. Ljósmynd/Colourbox Geta ekki gefið börnunum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja Í könnuninni voru foreldrar spurðir hvort fjárskortur hefði komið í veg fyrir að þeir gætu greitt kostnað vegna fimm grunnþátta fyrir börnin sín. Hærra hlutfall foreldra sem starfa í leik- og grunnskólum skortir alla þá fimm þætti sem spurt er um samanborið við launafólk í öðrum störfum. Þannig er um þriðjungur foreldra sem starfa í leikskóla og ögn lægra hlutfall foreldra sem starfa í grunnskóla sem getur ekki gefið börnunum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja (32% og 30% á móti 18%) og nánast sama hlutfall getur ekki staðið undir kostnaði við að halda veislur eða afmæli fyrir börn sín (31% og 28% á móti 21%) eða gefið þeim afmælis- og/eða jólagjafir (29% og 27% á móti 21%). Fjórðungur foreldra sem starfa í leik- og grunnskólum getur ekki greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna (25% og 26% á móti 19%) eða nauðsynlegan klæðnað fyrir börnin (24% og 24% á móti 17%). Starfsfólk í leikskólum á síður eigið húsnæði. mbl.is/Sigurður Bogi Starfsfólk í leikskólum á síður eigið húsnæði Þá segir að lægra hlutfall leikskólastarfsfólks (57%) en þeirra sem starfi í grunnskólum (73%) og annars launafólks (64%) búi í eigin húsnæði. Að sama skapi sé hærra hlutfall leikskólastarfsfólks á almennum leigumarkaði (18% á móti 10% meðal grunnskólastarfsfólks), í leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna leigusamtaka (6% á móti 3%) og hjá foreldrum eða ættingjum (13% á móti 8%). Staða starfsfólks í leik- og grunnskólum. Svarhlutfall Könnunin var ætluð félagsfólki í 43 aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem hafði greitt að minnsta kosti eitt iðgjald síðastliðna sex mánuði og var með netfang eða símanúmer skráð í félagatali stéttarfélagsins, alls 141.165 félagar. Af þeim svöruðu 24.644 félagar. Svarhlutfall var 17,4%. Í þessari skýrslu er svör þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum greind sérstaklega. Alls voru 908 sem starfa á leikskóla og 747 sem starfa í grunnskóla sem svöruðu könnuninni. Tengdar fréttir Leikskólamál Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á misnotkun veikindaréttar 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Andleg heilsa mælist verri en annarra hópa Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Beint: Inga Sæland situr fyrir svörum Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamótt