Innlent | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 11:16 Segja stöðuna áfellisdóm og smánarblett Leikskólakennarar ná margir hverjir ekki endum saman. mbl.is/Karítas Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki Fjórir af hverjum tíu starfsmönnum leikskóla sem ekki eru með kennaramenntun geta ekki náð endum saman fjárhagslega. Sama á við um þriðjung þeirra sem starfa í grunnskólum. 49% þeirra sem starfa í leikskólum segjast ekki geta mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum. 37% hafa ekki efni á vikulöngu fríi fjarri heimili og 18% starfsfólks á leikskólum hafa ekki efni á staðgóðri máltíð annan hvern dag. Fjórir af hverjum tíu þeirra sem starfa í leikskóla mælast með slæma andlega heilsu. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, sem kynnt var í gær. Þar er sjónum beint að fjárhagsstöðu og heilsu launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum, þ.e.a.s. ófaglærðs starfsfólks og starfsfólks með annars konar menntun en kennaramenntun. Upplýsingarnar eru úr könnun sem lögð var fyrir launafólk í 43 aðildarfélögum ASÍ og BSRB í fyrra og er þessi nýja greining byggð á svörum 908 sem starfa í leikskólum og 747 í grunnskólum. Búa við skort eða verulegan skort Þriðjungur þeirra sem starfa í leikskóla býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Um eða yfir fjórðungur þeirra sem starfa bæði í leik- og grunnskólum og eru með börn á heimili hefur sökum fjárskorts ekki getað greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna, keypt nauðsynlegan fatnað fyrir börn sín eða gefið þeim eins næringarríkan mat og þau vilja. „Tæplega helmingur þeirra sem starfa í leikskóla finnur meira en helming tímans eða daglega fyrir þreytu og orkuleysi (48%). Tæplega þremur af hverjum tíu líður illa með sjálfa sig eða finnst að þeir hafi ekki staðið í stykkinu gagnvart sjálfum sér eða fjölskyldu sinni (28%),“ segir í umfjöllun Vörðu. Níu af hverjum tíu á leikskólum eru með atvinnutekjur undir 750 þúsund kr. og 41% með heildartekjur undir 500 þúsund kr. „Það eru mikil vonbrigði að sjá hversu slæmar niðurstöðurnar eru og kannski mætti segja að þær séu áfellisdómur yfir okkar samfélagi að búa þannig að starfsfólki í lykilstörfum,“ sagði Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu, þegar hún kynnti niðurstöðurnar í gær. „Þetta er smánarblettur á íslensku samfélagi,“ sagði Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ eftir kynninguna. Benti hann á að tekjujöfnunarkerfið í samfélaginu héldi ekki í við raunveruleika fólks með þunga framfærslu vegna barna eða húsnæðis. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB sagði að miklu skipti fyrir tekjulága að komast inn í Bjarg íbúðafélag. „Þar hafa sveitarfélög heilt á litið verið að skila auðu,“ sagði hún. „Launin eru auðvitað allt of lág,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. „Efling hefur frá 2018 lagt mikla áherslu á að hækka þessi laun og við höfum náð árangri en á sama tíma hefur húsnæðisverð hækkað, sem býr til þennan stórkostlega vanda í lífi fólks með lágar tekjur. Þegar andleg heilsa mælist svona slæm þá er það líka vegna aðstæðnanna inni á leikskólanum,“ sagði hún. „Þetta er skammarblettur á samfélaginu okkar og við í Eflingu bindum miklar vonir við að loksins verði hægt að knýja á að fókusinn verði settur á þessi mál. Það þýðir ekki að horfa bara á launin, þó að þau séu auðvitað algjört grundvallaratriði verður líka að horfa á aðstæðurnar inni á vinnustaðnum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segja stöðuna áfellisdóm og smánarblett Tjáir sig um Salah: Ef einhver á það skilið þá er það hann Fyrsti kossinn var 10.10.10 Sagðist hafa tekið kókaín og fær því ekki bætur Sýn segir RÚV brjóta lög Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Herjólfur III verður klár í næstu viku Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin Hallærisplanið er ekki að virka Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Herjólfur III verður klár í næstu viku Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Segja stöðuna áfellisdóm og smánarblett Tjáir sig um Salah: Ef einhver á það skilið þá er það hann Fyrsti kossinn var 10.10.10 Sagðist hafa tekið kókaín og fær því ekki bætur Sýn segir RÚV brjóta lög Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Bandalag í bígerð um skipaumferð um Hormússund Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Herjólfur III verður klár í næstu viku Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás