Innlent | mbl | 30.4.2026 | 18:15 Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Drífa Snædal er talskona Stígamóta. Ljósmynd/Aðsend Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Ef við búum í samfélagi þar sem við viðurkennum að konur, líkamar kvenna, gangi kaupum og sölum til að þjónusta karlmenn þá er það ekki jafnréttissamfélag og þá eigum við mjög langt í land.“ Þetta segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta, en hún telur að fyrirætlanir dómsmálaráðherra um að þyngja lágmarksrefsingu fyrir vændiskaup þannig að hún verði fangelsisvist en ekki sekt sem og hugmyndir um að koma í veg fyrir nafnleynd vændiskaupenda í dómskerfinu geti skipt sköpum í þessum efnum. Endurskoðun refsirammans fyrir vændiskaup er ein af 25 aðgerðum sem ráðherra kynnti í morgun sem hluta af landsáætlun til að sporna gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum. Frétt af mbl.is Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Óskalistinn mun lengri „Ég er mjög ánægð með að það sé komin aðgerðaáætlun. Þetta er aðgerðaáætlun út af ofbeldi karla gegn konum. Það er mikilvægt að það sé viðurkennt á hinu pólitíska sviði og að það sé gripið til aðgerða,“ segir Drífa spurð hvernig landsáætlunin leggist í hana. Hún segir óskalistann eftir aðgerðum stjórnvalda á þessu sviði hins vegar mun lengri en 25 liða áætlunina sem nú hefur verið kynnt. „En ég er samþykk þessum skrefum sem eru tekin. Þetta er í samræmi við alþjóðasáttmála sem er mikilvægt að við styðjumst við í okkar störfum.“ Drífa var meðal þeirra sem sóttu kynningarfund um nýja landsáætlun í morgun. mbl.is/Karítas Hafði ekki tilætluð áhrif Spurð út í löggjöfina þegar kemur að vændiskaupum segir Drífa að eftirfylgdin með löggjöfinni skipti öllu máli. Á sínum tíma, þegar vændiskaup voru gerð refsiverð árið 2010, hafi Stígamót bundið miklar vonir við löggjöfina en að hún hafi ekki haft þau áhrif sem vonast var eftir. „Þetta hefur ekki haft þau áhrif sem þarf að hafa af því að þetta hefur engar afleiðingar fyrir vændiskaupendur. Þó að við skilgreinum þetta sem brot þá hefur þetta ekki haft afleiðingar,“ segir Drífa. „Þannig að ef við getum breytt lögunum og verið með eftirfylgni þannig að það hafi raunverulegar afleiðingar að kaupa sér aðgang að líkama kvenna, yfirleitt eru það karlarnir sem gera það, skiptir það bara gríðarlegu máli.“ Brjóta ítrekað gegn kynferðiskafla hegningarlaga Drífa telur að þær aðgerðir sem nefndar eru í landsáætluninni, þynging lágmarksrefsingar og nafnbirtingar gerenda, gætu breytt gríðarlega miklu. „Það er alveg ótrúlegt að í samfélaginu getirðu framið brot ítrekað, brot gegn kynferðiskafla hegningarlaga, án þess að það hafi nokkrar einustu afleiðingar aðrar en bara sekt,“ segir hún. „Það sem við vitum hjá Stígamótum og mjög margir eru að gera sér grein fyrir núna í kjölfar Kveiksþáttar er að þetta hefur gríðarlega alvarlegar afleiðingar. Þetta hefur afleiðingar fyrir einstaklingana sem eru í vændi, hvað þá mansali, og þetta hefur samfélagslegar afleiðingar af því að ef við búum í samfélagi þar sem við viðurkennum að konur, líkamar kvenna, gangi kaupum og sölum til að þjónusta karlmenn þá er það ekki jafnréttissamfélag og þá eigum við mjög langt í land.“ Frétt af mbl.is Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Ánægja sumra réttlætir ekki skaðann Þegar samfélagsumræða sprettur upp um vændi, eins og síðustu daga, benda alltaf einhverjir á að sumir seljendur stundi það af fúsum og frjálsum vilja. Rauða regnhlífin, samtök kynlífsverkafólks, hafa til að mynda bent á að það sé munur á kynlífsvinnu, vændi og mansali. Er réttlætanlegt að setja þetta allt undir sama hatt í lagalegum skilningi? „Mér finnst það af því að við sjáum ekki rosalega ljós mörk á milli þess sem er kallað kynlífsvinna, vændis og stundum mansals. Og það er oft þannig að þú heldur að þetta sé eitthvað stórkostlegt tækifæri sem reddar fjárhagnum og ferð jafnvel í fjölmiðla og segir að þetta sé frábært og æðislegt og svo koma afleiðingarnar í ljós. Þetta sjáum við ítrekað hjá Stígamótum,“ segir Drífa. „Nú ætla ég ekki að taka algjörlega fyrir það að einhver sé að þessu af fúsum og frjálsum vilja og finnist þetta jafnvel frábært. En skaðinn sem þetta veldur samfélagslega, og vil ég segja, miklum meirihluta einstaklinga, réttlætir það ekki að við búum til umgjörð þar sem þetta sé leyft og látið óáreitt. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Styrktarþjálfun eigi að vera hluti heilbrigðisþjónustu Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Grindavík – Valur kl. 19.15, bein lýsing Þróttur R. – FH kl. 19.15, bein lýsing Bellamy efstur á lista Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hallærisplanið er ekki að virka Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar „Þetta er litli föstudagur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Unnu í raun í Víkingalottóinu Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Styrktarþjálfun eigi að vera hluti heilbrigðisþjónustu Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Grindavík – Valur kl. 19.15, bein lýsing Þróttur R. – FH kl. 19.15, bein lýsing Bellamy efstur á lista Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég segi nei“ Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Sakaður um að hafa logið að bandarísku þjóðinni Fleiri stöður skólameistara auglýstar í haust Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Unnu í raun í Víkingalottóinu Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“