Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.4.2026 | 10:12 Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Allar aðgerðirnar 25 eru tímasettar og flokkaðar í sjö málaflokka. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup þannig að lágmarksrefsing verði fangelsi en ekki sekt. Einnig verður skoðað hvort rétt sé að gera breytingar á lögum til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla. Þetta er ein af 25 aðgerðum í nýrri landsáætlun gegn kynbundu ofbeldi gagnvart konum sem Þorbjörg Sigríður kynnti á fundi á Hilton Nordica rétt í þessu. Um er að ræða í fyrsta skipti sem sett er fram landsáætlun um hvernig Ísland, sem hefur fullgilt Istanbúlsamning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi, hyggst koma ákvæðum samningsins í framkvæmd. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra á fundinum í dag. mbl.is/Karítas Kortleggja heiðurstengt ofbeldi Allar aðgerðirnar 25 eru tímasettar og flokkaðar í sjö málaflokka: skilgreiningar, vernd og stuðning, forvarnir, rannsókn brota, saksókn, réttarfarsreglur og verndarráðstafanir, samhæfð stefna og gagnaöflun, efnislegan rétt og eftirfylgni og innleiðingu landsáætlunarinnar. Meðal þeirra aðgerða sem lagðar eru til er að skoða hvort að breyta eigi lagalegu skilgreiningunni á ofbeldi í nánum samböndum, samræming verkferla svo þeir nái til allra tegunda kynbundins ofbeldis, samræming verklags í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum og eflt aðgengi að þjónustu um land allt. Þá stendur til að auka fræðslu innan réttarvörslukerfisins um kynbundið ofbeldi gegn konum og binda skilorð geranda ofbeldis í nánum samböndum í auknum mæli við meðferð. Sömuleiðis stendur til að kortleggja heiðurstengt ofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald gegn konum og stúlkum hér á landi sem og auka fræðslu um slíkt ofbeldi. Fjölmenni var á fundinum. mbl.is/Karítas Fara sænsku leiðina Einnig á að endurskoða reglur um greiðslu bóta úr ríkissjóði til þolenda afbrota með hagsmuni þolenda kynbundins ofbeldis að leiðarljósi og skoða hvort gera eigi ófrjósemisaðgerðir án upplýsts samþykkis refsinæmar í almennum hegningarlögum. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili þess efnis að komið verði á rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, með þeim sakborningum sem sæta nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili, í þeim tilgangi að tryggja að slíkri ákvörðun sé framfylgt. Einnig verður unnið að breytingum á almennum hegningarlögum þannig að lágmarksrefsing fyrir vændiskaup verði fangelsi en ekki sekt. Samhliða verður skoðað hvort rétt sé að gera breytingar á lögum til að koma í veg fyrir að vændiskaupendur njóti nafnleyndar þegar mál fara fyrir dómstóla og gæta betur að réttindum seljenda vændis. Sambærilegar breytingar voru gerðar á sænskum lögum um vændiskaup árið 2006. mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á misnotkun veikindaréttar Andleg heilsa mælist verri en annarra hópa „Allt hefur verið afbókað“ Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Hefur ekki leikið sinn síðasta leik Høiby vill sitja í gæsluvarðhaldi heima Sigrún nýr aðalbókari Póstsins Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á Rúv Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Andleg heilsa mælist verri en annarra hópa „Allt hefur verið afbókað“ 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Klám er undirstöðuvandamálið Mest lesið Í gær Í vikunni „Allt hefur verið afbókað“ Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Líkur á misnotkun veikindaréttar Húsnæði Kjötborgar til sölu Eldur við söluskála Danska konan skuldar laun Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri „Það er miklu meira í boði en fólk heldur“ Baldur fer til Eyja Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article