Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Katla Ólafsdóttir nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Read Full Article →

Stjórnmálafræðineminn Katla Ólafsdóttir var kjörin forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands á kjörfundi Stúdentaráðs í kvöld. Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, bar sigur úr býtum í Stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands í mars og hlaut 11 fulltrúa í Stúdentaráði af 17. Ný réttindaskrifstofa SHÍ tekur til starfa í maí. Kjartan Helgi Guðmundsson, sem stundar nám í iðnaðarverkfræði, var kjörinn varaforseti SHÍ. Auður Halla Rögnvaldsdóttir, stjórnmálafræðinemi, var kjörin hagsmunafulltrúi SHÍ og María Björk Stefánsdóttir, fráfarandi oddviti Röskvu og nemandi í efnaverkfræði, var kjörin menntasjóðsfulltrúi SHÍ. Aðsend

Share this article