Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlé gert á þingfundum fram yfir sveitarstjórnarkosningar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Hlé gert á þing­fund­um fram yfir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar Markús Þ. Þórhallsson Í dag var síðasti þingfundadagur fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí og verður gert hlé á störfum Alþingis til miðvikudagsins 20. maí. Hlé hefur verið gert á þingstörfum til 20. maí. RÚV / Ragnar Visage Samkvæmt starfsáætlun voru 18. og 19. maí þingfundadagar en þess í stað verða nefndadagar báða þá daga. Þess í stað verða þingfundir 21. og 22. maí í stað nefndastarfa. Löng hefð er fyrir því að Alþingi taki hlé á störfum fyrir sveitarstjórnarkosningar sé þingstörfum ekki lokið áður. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Katla Ólafs­dótt­ir nýr for­seti Stúd­enta­ráðs Há­skóla Ís­lands Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Stjórnmálafræðineminn Katla Ólafsdóttir var kjörin forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands á kjörfundi Stúdentaráðs í kvöld. Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, bar sigur úr býtum í Stúdentaráðskosningum Háskóla Íslands í mars og hlaut 11 fulltrúa í Stúdentaráði af 17. Ný réttindaskrifstofa SHÍ tekur til starfa í maí. Kjartan Helgi Guðmundsson, sem stundar nám í iðnaðarverkfræði, var kjörinn varaforseti SHÍ. Auður Halla Rögnvaldsdóttir, stjórnmálafræðinemi, var kjörin hagsmunafulltrúi SHÍ og María Björk Stefánsdóttir, fráfarandi oddviti Röskvu og nemandi í efnaverkfræði, var kjörin menntasjóðsfulltrúi SHÍ. Aðsend Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Mun lík­lega standa tæpt hvort kjara­samn­ing­ar haldi í haust Aðalhagfræðingur hjá Arion banka segir lækkun eldsneytisverðs klárlega geta aukið líkurnar á að ekki þurfi að endurskoða kjarasamninga í haust, það verði þó líklega tæpt. Lækkunin hefur neikvæð áhrif á vísitölu neysluverðs um 0,25 prósent. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flest­ir treysta Sönnu Flestir borgarbúar treysta Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins. Fæstir treysta Sigfúsi Aðalsteinssyni, oddvita Okkar borgar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Lítið eft­ir­lit með vændi og veikt reglu­verk bitni á þeim sem veik­ast standa Dómsmálaráðherra vill að meginreglu sé fylgt svo nöfn þeirra sem brjóta gegn lögum um vændiskaup séu birt opinberlega. Vændiskaupendur eigi ekki að vera undanþegnir nafnbirtingu. Skoða þurfi lagaumgjörðina í heild. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Brugg­ari leitar að týndu vegg­lista­verki Listaverk sem prýddi vegg í Tónabíói á sínum tíma hvarf undir sprunguviðgerðir fyrir mörgum árum. Aðstandendur Reykjavík Bruggfélags, sem hefur aðsetur í húsinu í dag, ætla sér að endurgera myndina. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Vals­menn einum sigri frá Ís­lands­meist­ara­titl­in­um Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Bjarni í Selvindi var öflugur hjá Val í kvöld. RÚV / Mummi Lú Valsmenn eru aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitli karla í handbolta eftir sigur á FH, 32-30 í þriðja úrslitaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Valur er nú 2-1 yfir í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Valur getur því með sigri á FH í Kaplakrika á mánudagskvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Vinni FH mætast liðin í oddaleik næsta fimmtudagskvöld, 7. maí að Hlíðarenda. Bjarni í Selvindi var markahæstur Valsmanna í kvöld með sex mörk. Björgvin Páll Gústavsson varði 12 skot í marki Vals í kvöld og var með 42% markvörslu skv. HbStatz. Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði níu mörk fyrir FH. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti sigur Grinda­vík­ur/Njarð­vík­ur og Þrótt­ur vann FH Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og Þórs/KA í kvöld. RÚV / Mummi Lú Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur vann í kvöld sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna þegar liðið vann Þór/KA 2-1 í Grindavík. Suðurnesjaliðið er nýliði í Bestu deildinni. Erin Flurey kom norðankonum yfir en Natasha Anasi jafnaði fyrir Grindavík/Njarðvík áður en Sigríður Emma Jónsdóttir skoraði sigurmarkið á loka mínútu leiksins. Í hinum leik kvöldsins vann Þróttur svo 2-1 sigur á FH. Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir en Sigríður Th. Guðmundsdóttir og Kayla Rollins skoruðu mörk Þróttar. Þetta var fyrsti sigur Þróttar í deildinni í sumar. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík pakk­aði Val saman og færist nær úr­slit­um Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Grindvíkinga með Ólaf Ólafsson innanborðs eru í góðum málum. Mummi Lú Grindavík vann öruggan heimassigur, 93-67 á Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í kvöld. Þar með tók Grindavík forystuna í einvíginu og hefur nú unnið tvo leiki en Valur einn. Grindavík getur með sigri á Hlíðarenda á mánudag komist í úrslit, en vinni Valur verður oddaleikur í Grindavík 6. maí. Jeremy Raymon Pargo var stigahæstur Grindvíkinga í kvöld með 21 stig. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Vilja útrýma notkun jarð­efn­a­elds­neyt­is Alþjóðleg loftslagsráðstefna í Kólumbíu er fyrsta umhverfisverndarráðstefnan þar sem fókusinn er á orkuskipti og hvernig þjóðir heims geta sagt skilið við jarðefnaeldsneyti. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar „Ágætt að stjórn­völd ætli að hafa sér­stakt aðhald með ol­íu­mark­að­in­um“ Verð á eldsneyti lækkar á morgun. Útgjöld meðalneytanda ættu að lækka um 50 þúsund krónur á ári. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda fagnar því að Samkeppniseftirlitinu verði gert að vakta að lækkunin skili sér til neytenda. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi „Við getum enda­laust elt en það er eft­ir­spurn­in sem drífur“ Lögreglan getur haldið áfram að eltast við fólk sem brýtur lög um vændiskaup en rót vandans er eftirspurnin og hve arðbær starfsemin er, segir yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosið um end­ur­reisn Grinda­vík­ur „Það hefur verið lítil pólitík í Grindavík,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Lítið var um ágreiningsefni í oddvitaumræðum í Grindavík í kvöld og eru þeir staðráðnir í að vinna saman að uppbyggingu og endurreisn. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þjóð­þekkt­ir Ís­lend­ing­ar nafn­greind­ir á vafa­samri vef­síðu Vafasöm vefsíða hefur skotið upp kollinum á Íslandi á undanförnum dögum. Tilgangur hennar er að vara við ofbeldismönnum um heim allan, en hver sem er getur sett inn nafn og merkt við hvernig ofbeldi viðkomandi á að hafa beitt - alveg nafnlaust. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­um­ræð­ur í Grinda­vík Endurreisn samfélagsins í Grindavík var oddvitum lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu ofarlega í huga í oddvitaumræðum. Þrír listar eru í framboði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Ban­as­lys í Skorra­dals­vatni Kajakræðari fannst látinn norðan megin í Skorradalsvatni í gær. Lögreglan biður húseigendur í frístundabyggðum Skorradals að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum milli klukkan 15:30 og 19:00 í gær. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­um­ræð­ur í Skaga­firði Oddvitar framboða í Skagafirði mættust í oddvitaumræðum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fjórir listar eru í framboði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Spurn­ing­um um ESB-aðild og evru svarað Aukinn útflutningur og lægri kostnaður heimila og fyrirtækja eru á meðal helstu ábata aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Á móti kemur að erfiðara yrði að bregðast við sveiflum í hagkerfinu. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Ný högg­mynd eftir Banksy vekur at­hygli í London Skúlptúrinn sýnir mann í jakkafötum sem heldur á stórum fána. Fáninn hylur andlit mannsins sem sér því ekki að hann er við það að ganga af stöplinum. Stjórnandi hlaðvarps á BBC um Banksy segir þetta vera snilldarverk. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Dóm­nefnd Fen­eyjatví­ær­ings­ins segir af sér í mót­mæla­skyni Þátttaka Ísraels og Rússlands hefur verið bitbein í aðdraganda Feneyjartvíæringsins sem hefst 9. maí. Búið er að fresta verðlaunaafhendingu hátíðarinnar sem átti að fara fram sama dag. Hún verður þess í stað haldin 22. nóvember. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borg­ar­ráð vill að sýslu­mað­ur fjölgi ut­an­kjör­fund­ar­stöð­um Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu sýslumanns í Hlíðarsmára í Kópavogi. Borgarráð segir ákvörðun sýslumanns um að hafa atkvæðagreiðsluna aðeins á einum stað skerða verulega aðgengi kjósenda að henni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Svört rign­ing fellur til jarðar í Rúss­landi Úkraínumenn hafa aukið árásir á olíuinnviði Rússa undanfarna mánuði. Árásirnar hafa haft mikil áhrif og íbúar í borgum og bæjum nærri skotmörkum Úkraínumanna hafa meðal annars þurft að þola svarta rigningu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Frítt í strætó fyrir grunn­skóla­börn Reykja­vík­ur Borgarráð hefur samþykkt tillögur varðandi útfærslu þess að fella niður gjöld í strætó fyrir reykvísk grunnskólabörn. Áætlaður kostnaður við tillögurnar fyrir maí og júní eru tæpar 50 milljónir króna. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Reykjavíkurborg Guðjón Frið­riks­son er heið­urs­borg­ari Reykja­vík­ur Borgarstjóri sæmdi Guðjón Friðriksson, sagnfræðing og rithöfund, heiðursborgaranafnbótinni við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Hann hefur fengið margar viðurkenningar fyrir störf sín og verið sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Sonur fyrr­ver­andi sendi­herra Noregs látinn Sonur Monu Juul, sem sagði af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, er látinn. Hann var 25 ára. Juul og eiginmaður hennar gagnrýna áhrif fjölmiðlaumfjöllunar á börnin þeirra. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ol­íu­fé­lög sektuð ef lækkun skilar sér ekki til neyt­enda Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélög sem fara ekki að lögum um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Hann lækkar úr 24% í 11% á morgu

Share this article