Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur legið undir gagnrýni, meðal annars frá hröfnunum, fyrir að hafa sniðgengið marga mikilvæga viðburði á vegum atvinnulífs sem fellur undir hennar málaflokka. Það má þó hrósa henni fyrir að hafa á dögunum lagt land undir fót og heimsótt Alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna Seafood Expo Global í Barcelona. Það vakti þó athygli hrafnanna að það sem ráðherrann tók helst út úr heimsókn sinni á sýninguna var nauðsyn þess að taka upp aðlögunarviðræður við Evrópusambandið. Hvernig Hanna Katrín fær það út er ómögulegt að skýra því íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð á alþjóðavísu en það sama verður því miður seint sagt um sjávarútveg innan Evrópusambandsins. Það kann að vera að þessi afstaða ráðherrans sé lýsandi fyrir erindisleysi Viðreisnar. Flokkurinn hverfist um það eitt að koma Íslandi í skuldabandalagið í Evrópu og trúir því að svarið við öllum heimsins spurningum og áskorunum sé að ganga í Evrópusambandið. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .