Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 8:43 Vildi ekki hitta þingmennina Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Costan Kadis sjávarútvegsstjóri ESB kampakát eftir undirritunina sl. sumar. Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Nefndarmenn í minnihluta atvinnuveganefndar Alþingis leituðu eftir því að sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins sem staddur er hér á landi myndi eiga fund með nefndinni, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Tveggja daga heimsókn hans lýkur á morgun. Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins er nú staddur hér á landi í tveggja daga heimsókn, en hann mun m.a. eiga fund með Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Heimsóknin er sögð í framhaldi af viljayfirlýsingu sem þau undirrituðu sl. sumar um aukið samstarf Íslands og Evrópusambandsins í málefnum hafs og sjávarútvegs, en halda beri reglulega samráðsfundi um þau málefni sem undir eru. Ekki er sagt standa til að ræða mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Guðmundur Gunnarsson, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að sjávarútvegsstjórinn muni ekki hitta aðra ráðherra í heimsókninni en Hönnu Katrínu. Hins vegar muni hann funda með sérfræðingum atvinnuvegaráðuneytisins og þeim sem setið hafa í samninganefndum fyrir Íslands hönd vegna deilistofna. „Við munum einnig sýna honum eitthvað af þeim frábæru hlutum sem við erum að gera,“ segir Guðmundur og nefnir að farið verði með sjávarútvegsstjórann í heimsókn til Benchmark Genetics, til Grindavíkur og í Bláa lónið í framhaldinu af því. Þá muni Costas Kadis heimsækja Sjávarklasann og kynna sér verkefni sem unnið er að á þeim vettvangi og einnig sækja fiskvinnslu Brims heim. Jón Gunnarsson þingmaður sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Árni Sæberg Furðar sig á viðbrögðunum Jón Gunnarsson, 2. varaformaður atvinnuveganefndar, leitaði eftir því að sjávarútvegsstjórinn kæmi á fund nefndarinnar og segir hann að Kadis hafi beðist undan því að hitta atvinnuveganefndina og að þau skilaboð hafi fylgt að það væri bara stækkunarstjóri Evrópusambandsins sem tæki slíka fundi. „Þetta er mjög sérkennileg afstaða,“ segir Jón sem furðar sig á viðbrögðum sjávarútvegsstjórans, að vilja ekki ræða við íslenska þingmenn um sjávarútveg. Ekki hafi staðið til að ræða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hann veltir upp þeirri spurningu hvort viðbrögð sjávarútvegsstjórans séu runnin undan rifjum ráðherra Viðreisnar, Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra eða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, en sú síðarnefnda viðraði fyrir nokkru hugmynd um að Evrópusambandið tæki upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið í sínum ranni. „Þær hafa e.t.v. viljað forðast að málefni sjávarútvegsins kæmu til umræðu, enda vita þeir sem vilja að Evrópusambandið mun gína yfir íslensku fiskveiðiauðlindinni, færi svo að við myndum álpast inn í þann félagsskap,“ segir Jón. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Veruleg skerðing á bílastæðum Engin stemning fyrir flokkshroka Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá