Innlent | Morgunblaðið | 12.2.2026 | 9:15 Fríkirkjan endurnýjar safnaðarheimilið Öll efri hæð hússins var endurnýjuð í safnaðarheimili kirkjunnar. mbl.is/KHJ „Breytingar sem gerðar verða á húsinu munu skila sér í fallegu húsi sem mun falla enn betur en áður að bárujárnsbyggðinni hér við Austurgötu, Hverfisgötu og víðar í miðbænum,“ segir séra Einar Eyjólfsson, fríkirkjuprestur í Hafnarfirði, um breytingarnar sem unnið er að í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Hann segir að húsið sé orðið gamalt og farið að leka auk þess sem veggjatítla hafi fundist í þakhæðinni. Húsið verður allt tekið í gegn í áföngum og inngangi breytt með tilliti til aðgengis fatlaðra og lyfta sett upp í því. „Húsið verður tekið í áföngum og við söfnum fyrir hverjum áfanga fyrir sig. Síðasti áfanginn verður viðbygging við húsið, sem verður vestan við gamla húsið Linnetsstígsmegin og verður sjálfstæð bygging.“ Linnetsstígur 6 er forskalað timburhús, klætt að utan með stenikæðningu sem verður fjarlægð og húsið klætt með bárujárnsklæðningu eins og var upphaflega. Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði er stækkandi söfnuður og telur um 8 þúsund manns og fermast þar um 200 börn á ári hverju. Einar hefur þjónað í Fríkirkjunni frá 1984 og þá voru 1.700 manns í söfnuðinum. Á síðasta ári fjölgaði um 200 manns og segir hann að það hafi fjölgað jafnt á milli ára. Einar segir að fermingarbörn Fríkirkjunnar séu 50-60% af öllum börnum í Hafnarfirði. „Hjá okkur er öflugt safnaðarstarf og tónlistarstarfið mjög öflugt. Kirkjan er mikið notuð undir tónleikahald og í safnaðarheimilinu höfum við líka verið með öflugt starf þar sem margt er í gangi. Fríkirkjan réðst í miklar endurbætur á kirkjunni árið 1997, sem skilaði sér í einni fallegustu kirkjubyggingu landsins því að kirkjan fellur einnig mjög vel að byggðinni í kring. Fríkirkjan í Hafnarfirði Linnetsstígur Jens Eyjólfsson húsameistari teiknaði og byggði húsið að Linnetsstíg 6. Fyrsta verk hans sem sjálfstæðs byggingarmeistara var að teikna og byggja timburverksmiðjuna Völund. Hann byggði margar stórbyggingar þótt hann hafi ekki gert uppdrætti að þeim öllum. Þar má nefna Þrúðvang við Laufásveg 7, hús Sláturfélags Suðurlands við Skúlagötu, gasstöðina við Hlemm, pósthúsið og hús Sambands íslenskra samvinnufélaga við Sölvhólsgötu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Myndskeið: Gullverðlaun á ÓL með Laufeyju Lín Fríkirkjan endurnýjar safnaðarheimilið Fengu skemmu gefins Vann silfur á ÓL með tvo putta á vinstri Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert „Við erum niðurbrotin“ Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Nóttin með Høiby mínútu fyrir mínútu Unnið gegn eigin markmiðum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Væringar í Vopnafjarðarhreppi Allt að 15 stiga frost 50-60 metra rof á Reynisfjöru Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu Unnið gegn eigin markmiðum Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Íslendingar hvattir til að huga að heimför Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Ný kynslóð örflaga fyrir gervigreind Myndskeið: Gullverðlaun á ÓL með Laufeyju Lín Fríkirkjan endurnýjar safnaðarheimilið Fengu skemmu gefins Vann silfur á ÓL með tvo putta á vinstri Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Aðstæður stofni sjúklingum og starfsfólki í hættu Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Unnið gegn eigin markmiðum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Bæjarstjórinn einn á móti „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Smitaður af berklum: Sýna starfsfólki engan stuðning Væringar í Vopnafjarðarhreppi Allt að 15 stiga frost 50-60 metra rof á Reynisfjöru Inga tekur fimm með sér úr félagsmálaráðuneytinu Unnið gegn eigin markmiðum Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Íslendingar hvattir til að huga að heimför Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson