Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.5.2026 | 17:20 Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/María Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar » Fleiri tengdar fréttir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir það undarlegt að forsætisráðherra ráðist sérstaklega á Kópavog enda hafi bærinn unnið hvað mest að því að finna lausnir í leikskólamálum. Í ávarpi sínu á verkalýðskaffi Samfylkingarinnar í dag skaut Kristrún hörðum skotum að bæjarstjórnarmeirihlutanum í Kópavogi og gagnrýndi meðal annars há leikskólagjöld og skort á lóðaúthlutunum til Bjargs leigufélags. Kópavogsmódelið í leikskólamálum sem innleitt var í bæjarstjóratíð Ásdísar hefur gert það að verkum að engir lokunardagar hafa verið í leikskólum bæjarins í meira en tvö ár. Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu „Orðasleggja“ dugir ekki Ásdís gagnrýnir ávarp Kristrúnar harðlega. „Orðasleggja um leikskólamálin dugar ekki þegar alvöru aðgerða í leikskólamálum er þörf um land allt og sveitarfélög elta Kópavogsmódelið til þess að geta boðið áreiðanlega og góða þjónustu fyrir fjölskyldur í leikskólamálum. Forsætisráðherra boðar lögfestingu á leikskólastiginu, leið sem er bæði ófjármögnuð úr ríkissjóði og óraunhæft að hægt sé að uppfylla í þeim kennaraskorti sem nú ríkir.“ Segir Ásdís það, eins og áður segir, undarlegt að Kristrún ráðist sérstaklega að Kópavogi í þessu samhengi enda hafi Kópavogur unnið hvað mest að því að finna lausnir í leikskólamálum. „Við höfum innleitt þær lausnir með árangursríkum hætti sem hefur skilað sér í stórbættri þjónustu, um leið og 88% íbúa eru ánægðir með þjónustu bæjarins og mesta ánægjuaukningin hefur orðið hjá barnafólki í bænum skv. þjónustukönnun Gallup. Að kalla það „Kópavogsskatt“ er sannarlega orðasleggja með holum hljómi,“ segir bæjarstjórinn. Frétt af mbl.is Lofað upp í ermina á Alþingi „Sporin hræða svo sannarlega“ Segir Ásdís verkalýðsdaginn ærið tilefni til að fagna því harðduglega fólki sem meðal annars standi að Kópavogsmódelinu, forsætisráðherrann hafi þess í stað boðað hugmyndafræði sem sé löngu komin yfir seinasta söludag og hafi litlu skilað öðru en vonbrigðum og óánægju fjölskyldna í Reykjavík. „Það er engin eftirspurn eftir því Samfylkingarmódeli Reykjavíkur sem forsætisráðherra boðar á verkalýðsdeginum, hvorki í Kópavogi né öðrum sveitarfélögum,“ segir Ásdís. Ásdís hefur áður gagnrýnt Kristrúnu vegna útspilsins sem hún kynnti við Jysk í Kópavogi í apríl. „Um leið og nýbirtur ársreikningur Reykjavíkurborgar sýnir rekstur sem hefur að öllu leyti farið af sporinu, boðar sá flokkur sem á því ber mesta ábyrgð að ríkissjóði verði beitt sem kosningasjóði Samfylkingarinnar með tillögum sem eru bæði vondar og leggja á annan tug milljarða á herðar skattgreiðenda. Sporin hræða svo sannarlega,“ segir Ásdís. Frétt af mbl.is Einróma ánægja með Kópavogsmódelið Endurspegla hriktandi stoðir Telur bæjarstjórinn Samfylkinguna skorta trúverðugleika á ýmsum sviðum. „Í raun er ræða forsætisráðherra samfelld árás á Dag B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóra og húsnæðisstefnu Samfylkingarinnar í borginni undanfarin 30 ár. Samfylkingin, bæði Dagur og Kristrún sem forsætisráðherra, hefur engan trúverðugleika í húsnæðismálum, í rekstri borgarinnar né rekstri ríkisins, hvað þá í leikskólamálum.“ Ásdísi þætti æskilegra að forsætisráðherra eyddi verkalýðsdeginum í að einblína á hvernig ríkisstjórnin hyggst ná tökum á verðbólgunni og hækkandi vaxtastigi. „Það er eitt stærsta hagsmunamál heimila og miður að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hafi gjörsamlega misst tökin á efnahagsmálum. Þessar áherslur og útfærslur endurspegla hriktandi stoðir, ekki framsýni né lausnir sem lifa lengur en eitt kjörtímabil,“ segir Ásdís. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Óánægður með nýja tillögu: „Þeir eru allir í rugli“ Hefði getað brotið á honum ökklann Umræðan um liðið er þvæla Fanney og Thelma meistarar eftir sigur í Íslendingaslag Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Herjólfur III verður klár í næstu viku Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Óánægður með nýja tillögu: „Þeir eru allir í rugli“ Hefði getað brotið á honum ökklann Umræðan um liðið er þvæla Fanney og Thelma meistarar eftir sigur í Íslendingaslag Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article