Innlent | mbl | 1.5.2026 | 15:35 Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skaut föstum skotum að bæjarstjórnarmeirihlutanum í Kópavogi í ávarpi sínu á verkalýðskaffi Samfylkingarinnar í dag. Meðal þess sem Kristrún kom inn á í ávarpi sínu voru leikskólamál í Kópavogi og húsnæðismálin þar í bæ en bærinn hefur ekki úthlutað lóðum til Bjargs leigufélags á kjörtímabilinu. Kristrún hefur haft sig mikið frammi í kosningabaráttu Samfylkingarinnar en hún var meðal annars gagnrýnd er hún kynnti útspil Samfylkingarinnar við verslun Jysk á Smáratorgi í Kópavogi. Frétt af mbl.is Lofað upp í ermina á Alþingi Segir mikilvægast að Samfylkingin vinni Í ávarpi sínu sagði Kristrún það mikilvægasta húsnæðismálið að Samfylkingin hefði sigur í kosningunum í vor, ekki bara í Reykjavík heldur einnig í nágrannasveitarfélögunum og hringinn í kringum landið. „Tíundi hver Íslendingur er Kópavogsbúi en samt hefur bæjarstjórnin í Kópavogi ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði. Núll lóðir á 10 árum í næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Þetta er til skammar svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ sagði Kristrún. Frétt af mbl.is Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Einnig gagnrýndi hún fyrri ríkisstjórnir fyrir að hafa ekki gert Reykjavíkurborg kleift að byggja á ríkislóðum í borginni eins og áform eru nú um. „Ég spyr: Hvers vegna var þetta ekki gert fyrr? Hvers vegna í ósköpunum hafa ríkisstjórnir síðustu ára legið á þessum lóðum, verðmætu en vannýttu byggingarlandi í borginni, eins og ormur á gulli? Og það á tíma þegar húsnæðisverðið var að rjúka upp í hæstu hæðir, með tilheyrandi afleiðingum fyrir verðbólgu og vaxtastig. Þetta er algjörlega óskiljanlegt en sýnir á móti hvað við getum gert þegar ríki og sveitarfélög taka höndum saman og vinna saman að settu marki,“ sagði Kristrún. Frétt af mbl.is Engar lokanir í leikskólum Kópavogs Óánægð með kerfi sem útrýmt hefur lokunardögum Á kjörtímabilinu hefur náðst góður árangur í því að manna leikskóla Kópavogs og hefur lokunardögum þeirra verið útrýmt á síðustu árum. Kristrún er þó ósátt við þann aukakostnað sem fellur á einhverjar fjölskyldur vegna þessa, sem hún kallar „Kópavogsskattinn.“ „Við höfnum Kópavogsskattinum á barnafjölskyldur upp á 450 þúsund krónur á einu ári — fyrir fjölskyldu með tvö börn. Gjaldaleið Sjálfstæðisflokks gegn barnafjölskyldum er ekki rétta leiðin og það er alls ekki leið okkar jafnaðarfólks,“ sagði forsætisráðherra. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Frelsi frá „fáránleika og brjálæði“ bílastæðaappa » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bregðast við gróðureld í Grafarvogi Breiðholtslaug lokuð í viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu „Yrðum reknir á staðnum í Serbíu“ Kjarasamningar muni losna ef ekkert breytist Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Stríðsátökum Bandaríkjanna og Írans teljist lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Bregðast við gróðureld í Grafarvogi Breiðholtslaug lokuð í viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu „Yrðum reknir á staðnum í Serbíu“ Kjarasamningar muni losna ef ekkert breytist Umræðan Kópavogur – okkar heimili Fyrirtæki og stjórnvöld – þið eigið leik Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Herjólfur III verður klár í næstu viku „Þetta er litli föstudagur“ „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Herjólfur III verður klár í næstu viku Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás