Innlent | mbl | 1.5.2026 | 20:00 Ávarp Kristrúnar hluti af nálgun flokksins Jónas Már Torfason. Ljósmynd/Aðsend Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir » Fleiri tengdar fréttir Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á jafnaðarkaffi Samfylkingarinnar í Iðnó í dag er hluti af nálgun flokksins í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, að sögn Jónasar Más Torfasonar, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi. „Ég fagna því að formaður okkar flokks tali skýrt inn í þessar sveitarstjórnarkosningar og það er náttúrulega hluti af okkar nálgun inn í þessa kosningabaráttu, til dæmis með þessu útspili á landsvísu, af því að við erum að sýna að við ætlum að vinna saman, óháð því hvar við erum í stjórnkerfinu,“ segir Jónas í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Skökk pólitísk forgangsröðun Í ávarpi sínu skaut Kristrún föstum skotum að bæjarstjórnarmeirihlutanum í Kópavogi og gagnrýndi meðal annars há leikskólagjöld og skort á lóðaúthlutunum til Bjargs leigufélags. „Hún er eitthvað skökk, pólitíska forgangsröðunin, hér í bænum þegar ákvarðanir eru teknar sem gera ungu fólki erfitt að setjast að og við sjáum til dæmis að fólki á barneignaraldri fækkar hér á milli ára í fyrsta sinn í langan tíma,“ segir Jónas. Frétt af mbl.is Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Barnaskattur“ meirihlutans Hann segir hluta af þeirri þróun mega skýra með „barnaskatti“ meirihlutans. „Hluti af því er þessi barnaskattur eða leikskólagjöldin sem eru umtalsvert hærri en í öðrum sveitarfélögum og eru þau hæstu á landinu. Það munar til dæmis hundruðum þúsunda í Mosfellsbæ og Kópavogi.“ Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum, sagði frá því fyrr í dag að mikil ánægja væri með leikskólamálin í bænum. Samkvæmt könnun Gallups séu 88% íbúa ánægðir með þjónustu bæjarins og mesta ánægjuaukningin hafi orðið hjá barnafólki. Jónas segist finna fyrir ákalli eftir breytingum. „Það er komin ákveðin valdþreyta hérna, Sjálfstæðisflokkurinn búinn að vera lengi við völd og við teljum að það sé bara þörf á nýrri forgangsröðun hérna í bænum,“ segir hann. Útilokar ekkert samstarf Þá bendir hann á að gatnagerðargjöld hafi hækkað um 170% síðan 2021 sem hafi bein áhrif á húsnæðisverð, ásamt þeirri stefnu að selja byggingarrétt til hæstbjóðanda. Hann segir Kópavogsbæ bíða þess að markaðurinn leysi húsnæðisvandann í staðinn fyrir að grípa í taumana. Jónas segist ekki geta útilokað meirihlutasamstarf með neinum flokki, nú þurfi bara að bíða og sjá hvað komi upp úr kjörkössunum í maí. Ásdís Kristjánsdóttir. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Akranes: Kappræður oddvita Borgarbyggð: Horft til vaxtar þrátt fyrir fjárhagslegar áskoranir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík - Njarðvík, staðan er 62:50 Stóráfangi hjá fyrrverandi landsliðshetju Ávarp Kristrúnar hluti af nálgun flokksins McDonald's í Japan allt öðruvísi Bjarni á skotskónum í tapi Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er litli föstudagur“ Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Nýjast á mbl.is » Grindavík - Njarðvík, staðan er 62:50 Stóráfangi hjá fyrrverandi landsliðshetju Ávarp Kristrúnar hluti af nálgun flokksins McDonald's í Japan allt öðruvísi Bjarni á skotskónum í tapi Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Stríðsátökum Bandaríkjanna og Írans teljist lokið Herjólfur III verður klár í næstu viku Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Mest lesið Í gær Í vikunni Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum