Sindratorfæran á Hellu fer fram í dag og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Keppni hefst klukkan 10:00 og stendur yfir til um klukkan 16:00. Sindratorfæran er fyrsta torfæra sumarsins og hefur verið haldin nær óslitið síðan árið 1973. Keppt er í Tröllkonugili, rétt austan við Hellu, þar sem kjöraðstæður eru fyrir bæði ökutæki og áhorfendur. 31 keppandi er skráður til leiks í tveimur flokkum í ár en aðeins fimm sinnum í sögu torfærunnar hafa keppendur verið fleiri en 30. Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Heklu standa að keppninni sem fyrr. Í ár má búast við harðri keppni en margir mega teljast sigurstranglegir og margir hafa reynslu af því að standa á verðlaunapalli í keppnum sem þessum. Íslandsmeistararnir ríkjandi, Bjarnþór Elíasson og Finnur Bárðarson, eru til að mynda meðal keppenda. Í fyrsta sinn í níu ár mun svo kona keppa í torfæru því hin 17 ára Telma Lind Árnadóttir er skráð til leiks.