Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Loka Hringveginum austan Hellu aðfaranótt miðvikudags

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Loka Hring­veg­in­um austan Hellu að­fara­nótt mið­viku­dags Brynjólfur Þór Guðmundsson Hringveginum austan Hellu verður lokað klukkan átta annað kvöld og hann verður ekki opnaður aftur fyrr en klukkan sjö að morgni miðvikudags. Ástæðan er vinna við ræsagerð. Meðan á þessu stendur vísar Vegagerðin á hjáleið um Rangárvallaveg. Hringvegurinn austan Hellu verður lokaður aðfaranótt miðvikudags. RÚV / Þorgils Jónsson Fyrir 2 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mímir beitir sjálf­an sig sektum eftir fyll­er­ís­hót­an­ir Hálfíslenskur þingmaður í Noregi hefur borið fyrir sig drykkjuskap eftir að hann hótaði manni barsmíðum um páskana. Eftir að rannsókn lögreglu var felld niður fannst honum hann þurfa að borga einhvers konar sekt. Fyrir 37 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­her lokar Hormúss­undi í dag fyrir umferð til og frá Íran Dagný Hulda Erlendsdóttir Bandaríkjaforseti hefur hótað að loka fyrir alla umferð skipa til og frá Íran um Hormússund í dag. Lokunin á að taka gildi klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Íranar höfðu áður lokað sundinu fyrir skipum ríkja sem þeir skilgreina sem óvinveitt. Viðræður Bandaríkjanna og Írans í Pakistan um helgina báru ekki árangur og er talið að með hótunum sínum ætli Trump að þvinga Írana til að opna sundið. Siglingaleiðin er mikilvæg fyrir olíuflutninga og eldsneytisverð hefur hækkað síðustu vikur vegna stríðsins. Ríkin sömdu um fjórtán daga vopnahlé í síðustu viku og ekki er annað vitað en að það sé enn í gildi. Flutningaskip við Hormússund. Séð frá Khor Fakkan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 11. mars 2026. AP / Altaf Qadri Fyrir 40 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Peter Magyar harð­orð­ur í garð frá­far­andi stjórn­ar Ung­verja­lands Björn Malmquist Peter Magyar við upphaf blaðamannafundar í Búdapest í dag. RUV/Björn Malmquist Peter Magyar, leiðtogi Tisza flokksins í Ungverjalandi var með harða gagnrýni á Viktor Orban forsætisráðherra og Fidez-flokkinn sem tapaði þingkosningunum í gær. Magyar sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Búdapest að Péter Szijjártó núverandi utanríkisráðherra væri nú að tæta skjöl í utanríkisráðuneytinu eftir niðurstöður kosninganna í gær; hann líkti stjórn Orbans við glæpasamtök og sagði að Tamás Sulyok forseti Ungverjalands væri strengjabrúða stjórnvalda; Sulyok ætti að kalla saman ungverska þingið sem fyrst, afhenda Magyar umboð til stjórnarmyndunar og segja síðan af sér. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Fang­els­is­mála­stjóri tekur undir með fanga­vörð­um um óvið­un­andi ástand Fangar dvelja í kallkerfislausum klefum á Litla-Hrauni og fangaverðir segja ástandið í yfirfullum fangelsum óviðunandi. Fangelsismálastjóri tekur undir. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Inga Sæland hittir Ingu Sæland Þegar Sóli Hólm brá sér í gervi Ingu Sæland í Vikunni með Gísla Marteini átti hann ekki von á því að hin raunverulega Inga Sæland myndi birtast. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fólk undir þrí­tugu nei­kvæð­ast gagn­vart öðrum ferða­mát­um en einka­bíln­um Íbúar höfuðborgarsvæðisins yngri en þrjátíu ára eru neikvæðastir gagnvart öðrum ferðamátum en einkabílnum. Langur ferðatími er algengasta ástæða þess að fólk kýs einkabílinn. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Vatíkanið Páfi segist ekki óttast Trump Leó XIV páfi hefur ekki áhuga á að rökræða við Bandaríkjaforseta sem hefur gagnrýnt páfa harðlega. Hann ætlar að halda áfram að flytja boðskap friðar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarðabyggð Lækka gjald­skrár bæj­ar­ins Brynjólfur Þór Guðmundsson Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að lækka gjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins um þrjú prósent um mánaðamót. Í tilkynningu frá Fjarðabyggð segir að með þessu leggi sveitarfélagið sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa. Bæjarráð segir að svigrúm sé til lækkunar vegna bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar. Um leið eru stjórnvöld hvött til að grípa til sambærilegra aðgerða með endurskoðun gjaldskráa og lækkun álagna þar sem svigrúm er til staðar. 150 milljóna króna afgangur var af rekstri sveitarsjóðs í fyrra og 850 milljónir þegar fyrirtæki sveitarfélagsins eru talin með. Frá Eskifirði. Eskifjörður / RÚV - Rúnar Snær Reynisson Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Ræða elds­neyt­is­lækk­un og afnám línu­í­viln­un­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Fyrsti þingfundur Alþingis eftir páska hefst klukkan þrjú. Þrjú mál eru á dagskrá fundarins sem hefst með óundirbúnum fyrirspurnum. Fyrsta umræða verður um tvö stjórnarfrumvörp. Annað snýr að tímabundinni lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti til að sporna gegn verðbólgu sem ríkisstjórnin kynnti á föstudag. Frumvarpið verður tekið til fyrstu umræðu í dag. Síðasta málið er frumvarp innviðaráðherra um að fella niður línuívilnun og jöfnunarheimild vegna skel- og rækjukvóta. Frumvarpið hefur sætt gagnrýni. Níu útgerðir á Vestfjörðum sögðu hættu á verulegri byggðaröskun. Ráðherra segir ívilnunina hafa verið tímabundna ráðstöfun fyrir áratugum. Borð þingmanns í þingsalnum. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Tug­þús­und­ir fögn­uðu á götum Búd­a­pest Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar í Ungverjalandi hafa síðan í gær fagnað niðurstöðum þingkosninga ákaft. Tisza-flokkurinn undir forystu Peters Magyars vann stórsigur og því ljóst að valdatíð Viktors Orban er lokið, í bili hið minnsta. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Síminn situr uppi með sekt­ina Brynjólfur Þór Guðmundsson Hæstiréttur hafnaði beiðni Símans sem vildi fá að áfrýja dómi Landsréttar um sektargreiðslu vegna sölunnar á Mílu, sem þá var dótturfélag Símans. Seðlabankinn lagði 76,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann þar sem hann þótti hafa brotið gegn lagaákvæðum um innherjaupplýsingar. Það gerðist þegar fyrirtækið bauð fjórum hugsanlegum kaupendum að senda inn skuldbindandi, fullfjármagnað og skilyrðislaust tilboð í Mílu. Seðlabankinn taldi að við þetta hefðu orðið til innherjaupplýsingar sem hefði átt að birta opinberlega eða fresta í samræmi við ákvæði laga. Síminn höfðaði mál til að fá úrskurðinn ógiltan en tapaði í héraði og Landsrétti. Síminn höfðaði mál en tapaði bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Golf Rory með sögu­leg­an Masters sigur: „Vildi sanna að þetta var ekki hunda­heppni í fyrra“ Rory McIlroy varð sá fjórði í sögunni til að verja Masters titilinn í golfi í gær. Hann beið í 17 ár eftir fyrsta Masters titlinum sínum og telur að seigla sín á vellinum í gegnum árin sé að skila sér. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Stofn­aði reikn­ing í nafni fyrr­ver­andi og safn­aði rúmri millj­ón í yf­ir­drátt Karlmaður er ákærður fyrir að draga sér fé með því að stofna reikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar og nota hann til að millifæra yfir milljón á sjálfan sig. Hann er einnig grunaður um fjárdrátt gegn fyrrverandi tengdaföður sínum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Fá viku­frest í viðbót til að sækja um emb­ætti sýslu­manns Ís­lands Brynjólfur Þór Guðmundsson Dómsmálaráðuneytið hefur framlengt frest til að sækja um embætti sýslumanns landsins alls um viku. Fresturinn átti að renna út á morgun en verður nú til 21. apríl. Embættið tekur til starfa um áramót þegar níu landshlutabundin sýslumannsembætti verða lögð niður og eitt sýslumannsembætti á landinu öllu tekur gildi. Skipað verður í embættið til fimm ára. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skipar fyrsta sýslumann landsins. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp „Maður nátt­úr­lega getur ekkert treyst Dönum“ Leikstjóri þáttanna Danska konan er ánægður með viðtökurnar sem þættirnir hafa fengið í Danmörku. Hann hafi allt eins búist við því að þeim líkaði ekki þættirnir. Nýlega var tónlistin úr þáttunum gefin út á vínil. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Yf­ir­full­ar deild­ir og fangar vistað­ir í ófull­nægj­andi klefum Fangelsiskerfið er algjörlega komið að þolmörkum þess að hægt sé að tryggja öryggi og eðlilega þjónustu, segir stjórn Fangavarðafélags Íslands. Almennir fangar eru vistaðir í einangrunarklefum og almennar deildir eru yfirfullar yfir daginn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Eig­end­ur Horn­bjargs lögðu ríkið í héraði Hornbjarg er ekki þjóðlenda heldur eign 41 manns sem stefndi ríkinu eftir að óbyggðanefnd ákvað að bjargið skyldi vera í eigu ríkisins. Ríkið var sýknað af kröfu fólks sem taldi sig eiga Bjarnarnes. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ósigur Orbans er léttir í Bruss­el og annars staðar í Evrópu Komandi valdaskipti í Búdapest hafa áhrif langt út fyrir landamæri Ungverjalands; ekki síst í Brussel, þar sem Viktor Orban hefur löngum verið óþægur ljár í þúfu leiðtogaráðs og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægir vindar og víða rign­ing eða skúrir Austlæg eða breytileg átt víðast hvar um landið. Norðaustan tíu til átján á Vestfjörðum fram eftir degi. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir „Hann getur enn í dag komið manni mjög á óvart og búið til mjög sterk­ar til­finn­ing­ar við lest­ur­inn“ Þjóðfélagsumræða um dalandi lestur á verkum Halldórs Laxness hefur glætt áhuga á verkum nóbelskáldsins. Sérfræðingur á Borgarbókasafni segir útgáfuafmæli, vinsælar leikgerðir og leshring Víðsjár auka eftirspurnina. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran 1.639 voru teknir af lífi á síð­asta ári Írönsk stjórnvöld hafa ekki tekið svo marga af lífi á einu ári síðan árið 1989 samkvæmt tveimur mannréttindasamtökum. Óttast er að aftökum eigi eftir að fjölga enn frekar. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú 63.000 gátu ekki kosið á kjör­degi Brynja Dögg Friðriksdóttir Keiko Fujimori er talin sigurstrangleg í forsetakosningunum. EPA / Renato Pajuelo Um 63.000 kjósendur bíða þess enn að kjósa í þing- og forsetakosningum í Perú. Kjósendurnir gátu ekki kosið á kjördegi í gær vegna skorts

Share this article