Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Ökumanns sem reyndi að stinga af bíður kæra vegna fjölda umferðarlagabrota

  • What: Driver attempted to evade police
  • Impact: Traffic violations and public safety concerns
Read Full Article →

Ölvaður ökumaður sem reyndi að stinga lögregluna af í gærkvöld eða í nótt má búast við kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota. Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már Eiðsson Maðurinn var handtekinn líkt og tveir aðrir sem höfðu uppi ógnandi tilburði við meðborgara sína í miðborginni. Að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var ástand þeirra svo slæmt að beita þurfti þá lögreglutökum uns þeir voru komnir í fangaklefa. Alls sjö gistu fangaklefa í morgun. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð og sótt þangað af forráðamönnum eftir slagsmál í miðborginni. Auk þessa hafði lögregla afskipti af ökumönnum í ýmsu ástandi og sektaði nokkra sem óku talsvert yfir hámarkshraða.

Share this article