Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

700 hlupu í Eyjum þrátt fyrir tvísýnar samgöngur

Read Full Article →

Utanvegahlaupið The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum í dag. Ferðaáætlanir margra brugðust þar sem ekki var hægt að sigla milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Arnar Pétursson varð fyrstur í mark á einni klukkustund, fimmtán mínútum og ellefu sekúndum. 80 sekúndum síðar fór Þorbergur Jónsson yfir endalínuna. Andrea Kolbeinsdóttir kláraði hlaupið á einni klukkustund, 20 mínútum og tveimur sekúndum sem er nýtt brautarmet í kvennaflokki. Magnús Bragason, aðstandandi hlaupsins, var ánægður með hvernig til tókst eftir óvissu síðustu daga og vikna fyrir hlaup. „Þetta er búinn að vera frábær dagur. Það er búið að vera æðislega gaman. Það voru 700 manns sem hlupu í dag og allir glaðir. Við fengum frábært veður í morgun, síðan dró aðeins ský fyrir sólu, en það er búið að vera æðislega gaman.“ Uppselt varð í Puffin Run eiginlega um leið og skráning hófst. Vegna aðstæðna komust færri í hlaupið en vonir stóðu til. „Í hlaupið voru skráðir 1.800 manns. Þetta var metþátttaka, löngu fullt í hlaupið. Það voru 1.100 manns sem fengu að færa miðann sinn yfir á næsta ár, við leyfðum það sökum aðstæðna. 700 manns tóku þátt í dag.“ Magnús segist afskaplega þakklátur þeim 250 sem unnu við hlaupið í dag, stjórnsýslunni og Herjólfi sem reyndu að finna lausn á samgöngum og hlaupurunum sem tóku þátt. „Í dag voru 250 manns að vinna við hlaupið, 700 manns að taka þátt. Þannig að þúsund manns áttu hérna frábæran dag saman þrátt fyrir erfiðleikana sem að steðjuðu. Ég er ákaflega þakklátur öllum þeim sem tóku þátt á einn eða annan hátt.“ Puffin Run var fyrsta skipulagða hlaupið sem fór fram eftir að fyrstu lokunum í covid var aflétt 2020. Þá þurfti að skipuleggja framkvæmd hlaupsins með hliðsjón af faraldrinum. „Þetta er mjög sambærilegt,“ segir Magnús um skipulagningu hlaupsins í covid og nú þegar samgöngur voru í uppnámi. „Ég myndi segja að þetta væri aðeins erfiðara. Það var alltaf að koma lausn sem datt svo út. Við vorum þá sett til baka í skipulaginu.“ Hann segir að það hafi aldrei komið til greina að aflýsa hlaupinu. „Nei, það var aldrei spurning. Ég ætlaði alltaf að hafa hlaupið.“

Share this article