Í síðustu viku veltu hrafnarnir fyrir sér hvort að skipun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í embætti sendiherra hafi verið runnin undan rifjum Kristrúnar Frostadóttur til að koma enn einu högginu á aukaleikarann sinn, Dag B. Eggertsson. Bentu hrafnarnir á að framtíð hlaðvarpsins Flekaskila, sem Þórdís og Dagur stýra, væri komin í algjört uppnám. Dagur virðist aftur á móti hafa eytt þeirri óvissu því ef hrafnarnir skilja Facebok-færslu hans rétt mun hlaðvarpið áfram lifa góðu lífi og ekkert fararsnið á Þórdísi. Þannig verður hún, eftir því sem hrafnarnir best vita, fyrsti sendiherra landsins til að halda úti hlaðvarpi samhliða störfum sínum. Þó er önnur hlaðvarpsstjarna nátengd inn í sendiherraelítuna en Logi Bergmann Eiðsson, sendiherrafrú í Washington, heldur ásamt félaga sínum Jóni Júlíusi Karlssyni úti golfhlaðvarpinu Seinni níu. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .