Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjárskortur og tekjufall

Read Full Article →

Íslenskur textíliðnaður, ÍSTEX, tapaði 202 milljónum króna á tímabilinu 1. nóvember 2024 til 31. október 2025 en árið áður nam tapið 105 milljónum. Tekjur drógust saman um 11%, fóru úr 1.240 milljónum niður í 1.104 milljónir. Í ársreikningi segir að rekstur félagsins hafi verið afar erfiður á árinu þar sem tekjufall var mikið. Lausafjárskortur var verulegur og langvarandi, en mikil tími og kostnaður fór í að glíma við vanskil og semja við lánadrottna hérlendis og erlendis. Ekki tókst að greiða til bænda um 200 milljónir fyrir ull. Þá voru ákveðnar vörur seldar með verulegu tapi. Gripið var til aðhaldsaðgerða en meðalfjöldi stöðugilda fór úr 74 í 59 milli ára. Þá var ullarverð til bænda lækkað um rúm 30% fyrir árið 2026 og hætt að greiða fyrir mislita ull. Sala jókst þó á seinustu tveimur mánuðum rekstrarársins og var verkefnastaða góð fyrir fyrsta ársfjórðung. Áætlanir gera ráð fyrir að tekur verði um 1.219 milljónir á yfirstandandi ári og að hagnaður verði af rekstrinum, en ef áætlanir ganga ekki eftir er vafi um rekstrarhæfi félagsins til staðar. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article