Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Blikur á lofti í byggingariðnaði

  • What: Concerns about the impact of rising construction costs on the housing market
  • Impact: Construction workers and housing market participants
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.5.2026 | 6:00 | Uppfært 6:34 Blikur á lofti í byggingariðnaði Vaxtastigið virðist síður bitna á múrurum og málurum. mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Formenn félaga byggingar- og mannvirkjaiðngreina hafa áhyggjur af áhrifum hás vaxtastigs og spáðs samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni á stéttir sínar. Áhrifa kólnunar í byggingariðnaði gæti nú þegar innan ákveðinna greina. Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður félags pípulagningameistara, segist fyrst hafa heyrt af neikvæðri þróun í ársbyrjun frá einum og einum félagsmanni, en að nú sé svo komið að þó nokkrir píparar sem sérhæft hafi sig í verkum tengdum húsnæðisuppbyggingu séu farnir að draga saman seglin. „Menn finna fyrir samdrætti, bæði vegna þess að það gengur erfiðlega að selja íbúðir og að verktakar eru farnir að halda að sér höndum,“ segir hann. Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, segir allar stéttir í byggingariðnaði farnar að finna fyrir kólnun á markaði. „Það er farið að herða á markaðnum öllum.“ Hann talar um viðsjárverða hringrás vaxtahækkana og stöðnunar byggingarbransans. „Þegar stýrivextirnir hækka fer byggingarbransinn í lægð, ekkert er byggt og uppsöfnuð eftirspurn verður til. Þá réttast stýrivextir af, fólk fer aftur að kaupa íbúðir, en þá svarar framboðið ekki eftirspurninni og verðið fer upp úr öllu valdi, sem knýr áfram verðbólgu og vaxtahækkanir,“ segir hann. Því megi byggingariðnaðurinn ekki staðna, heldur verði að halda dampi. „Annars förum við alltaf sama og sama hringinn.“ Staðan leiðir það af sér að margir húsasmíða- og pípulagninganemar fá hvergi starfssamning, sem er ein forsenda þess að þeir ljúki námi sínu. „Það er engin launung á þeirri þróun, við erum farin að fá símtöl um krakka sem hreinlega komast ekki á samning,“ segir Jón. Slíka stöðu segjast hvorki Jón né Böðvar hafa séð frá því í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. „Það er nýtt hjá okkur að nemar eigi erfitt með að fá samninga, við höfum ekki orðið varir við það síðan í hruninu,“ segir Böðvar, en bætir því við að nemar fái samning að lokum þótt það teki lengri tíma. Svartsýnir á komandi vetur Vaxtastigið virðist síður bitna á múrurum og málurum, enda er sumarið alla jafna háannatími innan starfsstétta þeirra. Formenn félaga múrara- og málarameistara horfa þó miður bjartsýnum augum til haustsins. Að sögn Hannesar Björnssonar, formanns Múrarameistarafélags Reykjavíkur, eru félagsmenn svartsýnir á komandi vetur sökum hás vaxtastigs og þess hversu erfitt virðist orðið að selja nýjar íbúðir. „Það hefur ekki borið á því ennþá, en það kemur að því að menn fari að halda að sér höndum.“ Kristján Aðalsteinsson, formaður Málarameistarafélagsins, segir að þótt sannarlega sé einhver samdráttur í nýbyggingageiranum sé viðhaldsmarkaðurinn að stækka og sveiflurnar því ekki mjög miklar. „En við kvíðum þó óneitanlega vetrinum fyrir hönd kollega okkar sem eru í nýbyggingageiranum.“ Hann leggur til að stjórnvöld grípi til þeirrar mótvægisaðgerðar að endurgreiða virðisaukaskatt fyrir framkvæmdir að fullu, sem er fyrirkomulag sem nýlega var afnumið, enda myndi það ýta undir atvinnusköpun. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Opnar sig um ástina eftir 43 ár saman Ráðist á hersveitir Bandaríkjanna ef þær fara inn í Hormússund „Það verður að vera smá dramatík og miklar handahreyfingar“ Kraftur sem bætir upp ófrumleika Giuliani í lífshættu á sjúkrahúsi Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umræðan á Íslandi hreyfir við Norðmönnum Prammi á stærð við handboltavöll Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár „Ég veit hvar þú átt heima“ Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki bara glimmer og kjólar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Opnar sig um ástina eftir 43 ár saman Ráðist á hersveitir Bandaríkjanna ef þær fara inn í Hormússund „Það verður að vera smá dramatík og miklar handahreyfingar“ Kraftur sem bætir upp ófrumleika Giuliani í lífshættu á sjúkrahúsi Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki bara glimmer og kjólar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article