Innlent | mbl | 4.5.2026 | 10:25 Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Kristrún Frostadóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir. mbl.is/Eyþór/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Málið valdið samfélaginu miklu áfalli » Fleiri tengdar fréttir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það undarlegt að sjá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ráðast að Kópavogsmódelinu en tala ekki um „hrikalegt ástand mála í Reykjavík“. Kristrún kallaði Kópavogsmódelið í leikskólamálum „Kópavogsskattinn“ í ræðu á verkalýðsdaginn 1. maí. Með því vísaði hún til þess að sumar fjölskyldur greiði hærri leikskólagjöld á meðan aðrar greiði minna eða ekkert, en orð hennar hafa verið gagnrýnd m.a. af Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, sem og leikskólastjóra í Kópavogi sem hefur sakað Kristrúnu um að gera lítið úr faglegri vinnu og nota hana í pólitískum slagorðum. Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Frétt af mbl.is Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Innihaldsrýr pólitík „Sammála leikskólastjóranum í Kópavogi. Það er vægast sagt undarlegt að sjá forsætisráðherra, fyrst hún á annað borð er að skipta sér af leikskólamálum, ráðast að Kópavogsmódelinu en tala ekki um hrikalegt ástand mála í Reykjavík, sem öll sem einhverja innsýn hafa í málin þekkja vel. Það er leiðinlegt að sjá greint og metnaðarfullt fólk tilbúið til að stunda svo innihaldsrýra pólitík. Ofurálag, viðvarandi mönnunarvandi, gríðarlega há veikindatíðni (9,9%), skortur á fagmenntuðu starfsfólki; þegar að forsætisráðherra minnist ekki einu orði á öll þessi vandamál Reykjavíkurborgar í ávarpi á 1. maí en vitnar í handónýta skýrslu um að brúa bilið, skýrslu þar sem niðurstaðan er að árið 2030 eigi öll börn við 12 mánaða aldur að fá pláss á leikskóla en að alls ekki megi lengja fæðingarorlof, er augljóslega verið að spila ódýra pólitík í atkvæða-veiðiferð. Það finnst mér ekki sæmandi þegar verið er að fjalla um svo alvarlegt málefni,“ skrifar Sólveig Anna í færslu á Facebook. Frétt af mbl.is Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog „Ekki sæmandi siðuðu samfélagi“ Hún segir aukinheldur forystu verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkinguna láta sem ekkert skipti máli fyrir annað fólk en kostnaður þegar komi að leikskóladvöl barna en það megi ekki vera svoleiðis. „Við erum að ræða um stofnun þar sem að börn samfélagsins dvelja langa daga - aðbúnaður þeirra og starfsfólksins sem vinnur við að gæta þeirra getur ekki orðið eitthvað aukaatriði sem við fáumst ekki til að fjalla um. Það er ekki sæmandi siðuðu samfélagi sem kennir sig við norræna velferð að láta sem ekkert skipti meira máli en peningar, ekki einu sinni börnin okkar. Það á að ræða kosti og galla Kópavogsmódelsins og spyrja t.d. starfsfólkið þar hvernig þeim líður í kjölfar breytinganna sem þar voru gerðar. Og svo á að bera módelin saman með upplýsandi og málefnalegum hætti. Slíkt væri sæmandi þeim sem vilja láta taka sig alvarlega í svo alvarlegum málaflokki og eitthvað sem við öll hljótum að vilja sjá og skoða.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Málið valdið samfélaginu miklu áfalli » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Tveir FH-ingar enduðu á spítala Vísa starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi 15 milljón króna styrkur Landsliðskonan samdi í Rúmeníu Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Hvað er hantaveira? Prammi á stærð við handboltavöll Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits Blikur á lofti í byggingariðnaði Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ Tveir FH-ingar enduðu á spítala Vísa starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi 15 milljón króna styrkur Landsliðskonan samdi í Rúmeníu Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrír látnir um borð í skipi sem fer til Íslands Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Vita ekki fjölda kennslustunda sem falla niður Skólayfirvöld axli ábyrgð Mest lesið Í gær Í vikunni Húsnæðislán á 47 sekúndum Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits Blikur á lofti í byggingariðnaði Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis „Ég veit hvar þú átt heima“ Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Hvolfdist í hylinn: „Þetta var ekki notalegt“ Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Inga Dögg lést í kajakslysinu Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“