Innlent | mbl | 4.5.2026 | 16:15 Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Í umsögn landskjörstjórnar segir að báðar tillögurnar samræmist þeim meginsjónarmiðum sem landskjörstjórn hafði bent á í umsögn sinni til utanríkismálanefndar, þar á meðal að spurningin verði að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus. mbl.is/Sibba Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Hvað er ríkisstjórnin að fela?“ Umræðan á Íslandi hreyfir við Norðmönnum Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Kostir og gallar við ESB-aðild Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi » Fleiri tengdar fréttir Tvær nýjar tillögur um orðalag spurningarinnar sem þjóðin mun svara í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst samræmast meginsjónarmiðum Landskjörstjórnar um að spurningin eigi að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus. Þetta kemur fram í umsögn landskjörstjórnar til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem barst nefndinni föstudaginn 1. maí. Landskjörstjórn hafði áður gert athugasemdir við orðalag spurningarinnar þar sem talað var um hvort viðræðum ætti „að halda áfram“ við Evrópusambandið. Hafði nefndin bent á að á Íslandi væri staða viðræðnanna umdeild og að kjósendur gætu talið orðalagið „að halda áfram“ ónákvæmt. Frétt af mbl.is Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu Frétt af mbl.is Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Skýr, skiljanleg og hlutlaus Í nýrri umsögn landskjörstjórnar kemur fram að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi með erindi óskað umsagnar kjörstjórnarinnar um tvær tillögur að breyttu orðalagi. Annars vegar spurningunni Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? og hins vegar Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Svarmöguleikar við báðum spurningum yrðu einfaldlega já eða nei. Í umsögn landskjörstjórnar segir að báðar tillögurnar samræmist þeim meginsjónarmiðum sem landskjörstjórn hafði bent á í umsögn sinni til utanríkismálanefndar, þar á meðal að spurningin verði að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus. Búið að semja við Lagastofnun HÍ um kynningarefni Þá óskar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd einnig eftir frekari upplýsingum um hvernig landskjörstjórn hyggist standa að kynningu málefnisins. Samkvæmt lögum ber henni að standa fyrir víðtækri og hlutlausri upplýsingagjöf en markmiðið er að kjósendur geti myndað sér upplýsta skoðun áður en þeir greiða atkvæði. Að því er segir í umsögninni hefur landskjörstjórn þegar samið við Lagastofnun Háskóla Íslands um að vinna kynningarefni. Sú vinna sé hafin og muni taka mið af endanlegri afgreiðslu Alþingis á þingsályktunartillögunni. Skammur undirbúningstími gæti skapað áskoranir Segir í umsögninni enn fremur að lögð verði sérstök áhersla á að kynningarefnið verði sett fram á skýran og aðgengilegan hátt og að það berist breiðum hópi kjósenda. Landskjörstjórn telji æskilegt að efnið verði tilbúið sex til átta vikum fyrir kjördag, svo fólk hafi nægan tíma til að kynna sér málið. Einnig er komið inn á tímasetningu atkvæðagreiðslunnar í umsögninni og bendir landskjörstjórn á að skammur undirbúningstími geti skapað áskoranir varðandi kynningarefni. Þrátt fyrir það telur hún sig geta staðið við lögbundna skyldu sína um að tryggja fullnægjandi kynningu á málinu. Tengdar fréttir Ísland og ESB „Hvað er ríkisstjórnin að fela?“ Umræðan á Íslandi hreyfir við Norðmönnum Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Kostir og gallar við ESB-aðild Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Varalið Forest skellti Chelsea Elísabet og Pétur eignuðust stúlku „Þessi heslihnetu- og súkkulaðiostakaka er hrein dásemd“ Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Sjálftavirkni aukist og land rísi Skólayfirvöld axli ábyrgð Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Landskjörstjórn fellst á nýtt orðalag spurningarinnar Varalið Forest skellti Chelsea Elísabet og Pétur eignuðust stúlku „Þessi heslihnetu- og súkkulaðiostakaka er hrein dásemd“ Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Hætta á sinueldum og éljum í vikunni Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Sjálftavirkni aukist og land rísi Skólayfirvöld axli ábyrgð Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“