Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum

  • What: Report on heavy trucks causing damage to roads in South Iceland
  • Impact: Local communities and road maintenance authorities
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.5.2026 | 18:30 Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum Gera þarf stórátak í endurbótum á vegum á Suðurlandi svo þeir hrynji ekki alveg. Og þetta er víðar á landinu, segir Jónas, hér við sekki sem hefur verið raðað upp á kajanum í Þorlákshöfn. Gamla Meitilshúsið í baksýn. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Stórir flutningabílar sem aka með áburðarsekki hafa verið áberandi úti á þjóðvegunum að undanförnu. Farmskip hafa komið í hafnir úti um land með áburð sem svo er ekið inn til lands og út um sveitir. Þetta eru oft langar leiðir og farmurinn er þungur. Málin þurfa þó að ganga greitt fyrir sig svo bændur geti hafið vorverkin; plægt land, sáð og dreift áburði. „Vegirnir hér á Suðurlandi eru í stórum stíl að brotna niður og ástandið er slæmt,“ segir Jónas Már Jóhönnuson flutningabílstjóri. Morgunblaðið hitti hann í Þorlákshöfn þar sem hann var að gera klárt fyrir leiðangur út í sveitir með áburð sem fluttur var inn og seldur af Fóðurblöndunni. Farkosturinn var Man-bíll með flatvagni. Sá má að hámarki vega 44 tonn; það er vagninn sjálfur og farmurinn sem er 27 tonn. Það gera 45 áburðarsekkir, 600 kíló hver. „Undirlag vega úti í sveitunum er oft mjög veikt. Stundum nánast bara drulla svo ég segi nú ekki meira. Raunar er stóra málið að þjóðvegirnir á Íslandi eru meira og minna ónýtir. Þegar ekið er héðan frá Þorlákshöfn þá er vegurinn á Hafnarskeiði fyrir vestan Óseyrarbrúna mjög veikbyggður og brotinn og víða eru bylgjur, segir hann og bætir við að svona sé ástandið víða. „Gera þarf stórátak í endurbótum á vegum víða á Suðurlandi svo þeir hrynji ekki alveg. Og þetta er víðar á landinu; vegakerfið er alveg komið að þolmörkum,“ segir Jónas Már. Vinna eins og þeir mega Okkar maður vippar sér í stýrishús gaffallyftarans sem stendur á sjávarkambinum í Þorlákshöfn. Hér ganga menn í öll störf nánast af listfengi, svo gott form er á uppröðun áburðarpokanna sem þarna eru í löngum röðum. „Jú, það er talsvert verkefni að koma þessu öllu út. Fyrra áburðarskipið kom hingað til Þorlákshafnar 11. apríl og þá strax byrjuðu flutningar á farminum. Þetta er törn sem væntanlega mun standa alveg út maí og menn vinna jafn lengi og þeir mega,“ segir Jónas Már en reglur um leyfilegan vinnutíma setji mönnum skorður. „Núna megum við vinna fimm daga aðra vikuna og hina sex daga og það bara ákveðinn stundafjölda – og að jafnaði ekki meira en níu klukkustundir á dag. Svo koma inn í þetta líka ákvæði um hvíldarstundir á vinnudögum. En þetta þyrfti að vera rýmra. Að mega vinna og keyra tíu tíma á dag væri að mínu mati mátulegt. Svo þarf líka við vegina að koma upp hvíldaraðstöðu fyrir bílstjóra, eins og sést til dæmis í Noregi og Svíþjóð,“ segir Jónas Már og að síðustu: „Annars er maður í besta starfi sem hugsast getur. Það eru algjör forréttindi að vera úti í sveitunum þar sem maður hittir venjulegt, harðduglegt og gott fólk sem skilar alltaf sínu. Það lætur hlutina ganga upp svo samfélagið virki.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 0:0 Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum FH – Valur kl. 19.30, bein lýsing Með þriggja stiga forskot á toppnum Munu leggja til að orðalaginu verði breytt Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Munu leggja til að orðalaginu verði breytt Bandarísk herskip komin í Persaflóa Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 0:0 Áburður fluttur á ónýtum þjóðvegum FH – Valur kl. 19.30, bein lýsing Með þriggja stiga forskot á toppnum Munu leggja til að orðalaginu verði breytt Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Ekið á mannfjölda í miðborg Leipzig Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article