Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Eina leiðin til að hlífa slitlagi að taka þungu bílana af vegunum

  • What: Heavy vehicle restrictions are in place due to road damage from severe weather
  • Impact: Travelers and drivers in western Iceland may face disruptions
Read Full Article →

Vegagerðin hefur sett þungatakmarkanir á tólf vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem veður hefur valdið miklum skemmdum á slitlagi. Leyfilegur ásþungi fer niður í tíu tonn nema á Vestfjarðavegi frá Dalsmynni að vegamótum Djúpvegar í Króksfirði þar sem hann fer niður í sjö tonn. Engar takmarkanir eru enn sem komið er á Hringveginum um Borgarfjörð. Kristinn Gunnar K. Lyngmo, deildarstjóri þjónustudeildar á vestursvæði hjá Vegagerðinni, segir að hlýindi og hláka undanfarið hafi farið mjög illa með slitlag, sérstaklega í Dalasýslu. „Það er þessi þýða. Þegar frostið fer úr veginum spýtist vatnið upp um slitlagið og það brotnar í köggla og er bara stórhættulegt fyrir umferð.” Ástand veganna á þessu svæði sé þannig að svona aðgerðir séu viðbúnar. „Þetta eru gamlir vegir, burðarlagið er búið og burðurinn farinn. Þegar er mikið af fínefnum er mikill raki í veginum. Þá lendum við í þessum skemmdum þegar við fáum svona snögga þýðu. Það eina sem við getum gert til að vernda veginn er að taka stóru þungu bílana af, til að reyna að hlífa slitlaginu.” Mest áhrif á fiskflutninga Þeir bílar sem þessar aðgerðir snerta helst eru bílar sem flytja fisk milli landshluta. Takmörk á farmþunga þýði að fara þarf fleiri ferðir. Kristinn segir að Breiðafjarðarferjan Baldur gæti hjálpað til með að koma bílum suður fram hjá takmörkunarsvæðunum. Mögulega verði bætt við ferðum. Kristinn segir að starfsfólk Vegagerðarinnar sé byrjað að hreinsa vegi, þar sem þarf, og lækka hraðatakmörk til að koma í veg fyrir að bílar skemmist. Takmörkunum verði aflétt um leið og fer að kólna í veðri og frost kemst aftur í veginn. „Við erum með frostmæla þannig að við sjáum hvað hlákan er að fara langt niður. Við fylgjumst með því og um leið og við getum afléttum við þungatakmörkunum.“

Share this article