Vegir á Vesturlandi hafa komið nokkuð vel undan ófærð síðustu daga. Umhleypingar í veðri, þegar frýs og þiðnar til skiptist, hafa neikvæð áhrif. Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni á Vesturlandi, segir frost og snjó fara betur með vegina en sífelldar breytingar. Margir vegir séu 30-40 ára og hafi ekki verið lagðir fyrir þá umferð sem er á þeim í dag. Víða sé burðarlag lítið eða ófullnægjandi sem geri vegina viðkvæma fyrir skemmdum. „Það er í rauninni betra fyrir okkur að hafa snjó og frost frekar en þessa umhleypinga. Þegar frostið er að fara úr veginum koma skemmdir af því að vatnið frýs í burðarlaginu. Og þegar burðarlagið nær ekki að losa sig við vatnið koma þessar slitlagsskemmdir í ljós.“ Nauðsynlegt að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir Pálmi segir ástandið á vegakerfinu hafa versnað á síðustu árum og að fjármagn fari í auknum mæli í lagfæringar til skemmri tíma. „Við erum sífellt að eyða meiri pening í svona bráðaviðgerðir eins og holufyllingar og einhverjar svona lagfæringar þar sem við erum að slökkva elda, en það hefur svo sem við höfum verið að fá aukið fé, bæði í fyrra og núna, til þess að bregðast við og vonandi verður það áfram næstu árin þannig að við náum í skottið á okkur í þessum málum.“ Hann telur nauðsynlegt að ráðast í umfangsmeiri framkvæmdir. Ástandið sé víða slæmt, meðal annars á Vestfjarðavegi og Snæfellsvegi, þar sem gamlir vegir séu farnir að láta á sjá. „Stóra myndin er náttúrulega bara að það þarf að ráðast í stórátak í að endurnýja burðarlög. Þá færðu bæði aukinn styrk og þá tryggirðu líka þessa afvötnun sem er ekki í dag. Það er svona stóra myndin til þess að ná einhverju taki á þessu. Og það gerist bara með auknu fjármagni í einhvern langan tíma.“ Hann segir endurnýjun vega vera mjög aðkallandi verkefni sem mikilvægt sé að ráðast í með auknu fjármagni. „Við erum aftur að fá aukinn pening og það er bara mjög mikilvægt að það haldi áfram þannig að það sé hægt að ná í skottið á sér í þessu. Af því að þrátt fyrir að við séum að fá aukna peninga dugar það ekki alveg til þess að bjarga öllu og ástandið heldur bara áfram að versna ár eftir ár.“